Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Arkitektinn Anna byggir fyrsta hamphús Íslands: „Já ok, þetta verð ég klárlega að skoða betur“

Arkitektinn Anna byggir fyrsta hamphús Íslands: „Já ok, þetta verð ég klárlega að skoða betur“

Anna Kristín Karls­dóttir. Arkitekt.

Hamp­fé­lagið stendur á bak­við HAMPKASTIÐ sem eru umræðu­þættir í hljóði og mynd og fjalla að sjálf­sögðu um hamp.  Þátta­stjórn­endur eru stjórn­ar­menn Hamp­fé­lags­ins, Sigurður Hólmar og Þórunn Þórs. Gunnar Dan Wiium sér um úrvinnslu og frétt­ar­skrif og Sigfús Ótt­ars­son um tækni­mál. Gestir þátt­ar­ins verða bæði íslenskir og erlendir sér­fræð­ingar á sínu sviði um nýt­ingu hamps. 

Nýjasti gestur Hamp­kasts­ins er Anna Kristín Karls­dóttir arki­tekt og með­eig­andi á arki­tekt­ar­stof­unni Lúdika.

Kynntist hampinum seint

Anna ólst upp á Íslandi og í Svíþjóð, stund­aði nám í Reykja­vík, Glasgow og London og er með arki­tekta­rétt­indi bæði á Íslandi og Bret­landi. Hún hefur mikla reynslu af hönnun íbúðar-, versl­unar- og skóla­hús­næðis víðs­vegar um Bretland, Ísland og Noreg. Hún hefur leitt mörg krefj­andi verk­efni frá upp­hafi hönn­unar til bygg­ing­ar­loka víðs­vegar um Reykja­vík, London og Bretland.

Anna lærði grunn­arki­tektúr á Íslandi ólíkt því sem margir sem hún þekkti gerðu sem fóru strax erlendis í nám. For­sendur þeirra ákvörð­unar segir Anna að hún hefði haft áhuga á að kynna sér sér­kenni Íslands innan arki­tekt­úrs sem eins­konar grunn. 

Anna kynnt­ist hamp­inum kannski frekar seint í ferl­inu en þá var hún í leit að vist­vænum efnum og sjálf­bærni í bygg­ing­ar­iðn­aði. Hún vann ásamt mann­inum sínum lengi í London og var að skoða vist­vott­un­ar­kerfi þar og í því sam­hengi dúkk­uðu upp efni eins og korkur og strá­balar sem eru notuð í hefð­bundin strá hús sem er alls ekk­ert langt frá hug­mynd­inni um hamp­hús.

Eftir að hafa klárað námið á Íslandi flutti Anna til Glasgow í masters­nám og þar kynnt­ist hún mann­inum sínum Jan sem einnig er arki­tekt. Í Glasgow kynnt­ist Anna fyrst mögu­leikum hamps­ins hvað varðar hamp­steypu og eitt­hvað sagði henni að loks­ins hefði hún ram­blað á hrá­efnið sem hún hafði verið að leita að. Stuttu eftir að hún og mað­ur­inn hennar fluttu til Íslands sá hún í frétt­unum að lög­leið­ing rækt­unar iðn­að­ar­hamps hefði verið sam­þykkt í þing­inu og þá hugs­aði hún „já ok, þetta verð ég klár­lega að skoða betur.“

Hamp­steypan er þeim eig­in­leikum gædd að hún myglar ekki, hún er gufugegn­dræp svo hún andar sem kemur alfarið í veg fyrir myglu. Hamp­steypan við­heldur jöfnum hita og raka­stigi inn­an­dyra. 

Aðrir kostir hamp­steypunnar er hvað hún er umhverf­is­væn. Hamp­ur­inn bindur ekki bara koltví­oxíð meðan hann vex, því hamp­steypan heldur áfram að sjúga það í sig næstu ára­tugi. Hamp­steypa andar líka og er ein­angr­andi og brennur hvorki né myglar. Það hljómar næstum of gott til að vera satt.  

Anna og mað­ur­inn hennar Jan eru að fara að byggja fyrsta hamp­húsið á Íslandi næsta sumar.

Anna fór að kynna sér Hamp­fé­lagið og kynnt­ist fljótt stjórn­ar­með­limum og í sam­vinnu hefur þeim tek­ist að stíga fyrstu skrefin í átt að fyrsta lög­lega hamp­hús­inu á Íslandi. 

Hvað varðar hrá­efni í húsið segir Anna að það skipti miklu máli að nota íslenskt rækt­aðan hamp til þess að minnka kolefn­is­sporið.

Talið er að mann­virkja­geir­inn beri ábyrgð á um 30-40% af losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu. Tæplega helm­ingur þeirrar los­unar kemur frá bygg­inga­efnum, einkum stein­steypu.  

Anna brennur fyrir sjálf­bærni í bygg­ing­ar­iðn­aði og finnur sig knúna til að stuðla að breyt­ingum varð­andi val á bygg­ing­ar­efnum. Stjórn­völd á Íslandi hafa lofað kolefn­is­fríu sam­fé­lagi árið 2030 og segir Anna að hamp­steypan sé klár­lega einn þáttur í að kolefn­is­frítt Ísland geti orðið að veru­leika.

Síðasta haust stóð Lúdika í sam­vinnu við Hamp­fé­lagið fyrir hamp­steypu­nám­skeiði sem írski arki­tektin Tom Woolley hélt. Hægt er að segja að Tom sé faðir hamp­steypunnar í Evrópu og eflaust á heim­vísu og á þessu örnám­skeiði í hamp­steypu­gerð tókst Tom að sýna hversu ein­föld fram­leiðslan á hamp­steypu raun­veru­lega er.

Tom færðir áhuga­sama um hamp­inn sem bygg­ing­ar­efni

Þetta upp­lýsandi við­tal má sjá á spil­ar­anum hér fyrri neðan auk þess að finn­ast á öllum helstu streym­isveitum.  Einnig má benda á auð­velt er að skrá sig í Hamp­fé­lagið á hamp­felagid.is og fá þar reglu­lagar til­kynn­ingar á því sem er að ger­ast í hamp­brans­anum á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu