Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýtt hættukort sýnir víðara svæði og nýjar ógnir

Skjálfta­virkni er við kviku­gang nálægt Reykja­nes­braut og nýjar sprungur finn­ast á ferða­manna­stöðum.

Nýtt hættukort sýnir víðara svæði og nýjar ógnir
Sprunga í Grinda­vík Hættu­legar sprungur náðu í gegnum Grinda­vík eftir kviku­hlaup án eld­goss 10. nóv­em­ber 2023. Hér sést ein sprungan í febr­úar í fyrra. Nú hefur kviku­gangur færst og sprungu­mynd­anir dreift úr sér. Mynd: Golli

Veð­ur­stofa Íslands hefur breytt fram­setn­ingu sinni í hættu­mat­skortum til að ná yfir ógnir sem ekki var áður varað við, eins og Mannlíf greindi frá í gær.

Í umfjöllun Mannlífs í gær­morgun kom fram að skila­boð og kort almanna­varna og Veð­ur­stof­unnar næðu ekki til vin­sælla ferða­manna­staða þar sem nýjar gjár og sprungur hefðu verið að finn­ast eftir kviku­hlaupið 1. apríl. Það er nú breytt. Nýja kortið sýnir stöð­una nærri Reykja­nestá, þar sem metin er hætta á jarð­falli ofan í sprungu, jarð­skjálftum og sprungu­hreyf­ingum.

„Nýleg þróun atburða á skag­anum, þar sem kviku­gangur mynd­að­ist og náði í norð­austur hluta eld­stöðv­ar­kerfis Svarts­engis þann 1. apríl 2025 og gos­upp­tök urðu vestur af nyrsta hluta Fagra­dals­fjalls í ágúst 2024, und­ir­strikar þörf á hættu­mati fyrir stærra svæði,“ segir í umfjöllun Veð­ur­stof­unnar. „Því hefur nýtt kort verið þróað til að yfir­stíga tak­mark­anir fyrra korts. Nýja kortið nýt­ist ekki ein­göngu við hættu­mat á Reykja­nesskaga heldur hefur verið þróuð aðferða­fræði sem hægt er að beita á öll önnur virk eld­stöðvakerfi á Íslandi.“

Maður lést í Grinda­vík 10. jan­úar í fyrra eftir fall ofan í sprungu í Grinda­vík og hafa fimm rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu út frá aðbún­aði og öryggi á vinnu­stað.

Nýtt hættu­mat­skortVeð­ur­stofan sýnir nú víð­ara svæði en áður, enda hefur kviku­gangur teygt sig hálfa leið til Hafna­fjarðar og sprungur grein­ast á víð­ara svæði en áður. Þrjú hættu­mats­stig eru á kort­inu, frá gulu upp í rautt. Grænt táknar enga aukna virkni, gult aukna virkni, app­el­sínugult tölu­vert aukna virkni og rautt merkir „eld­gos í gangi eða yfir­vof­andi“.

Í umfjöllun Veð­ur­stof­unnar í dag kemur fram að land­ris sé tvö­falt hrað­ara en fyrir síð­asta eld­gos. Þá er fjallað um skjálfta­virkni við kviku­gang­inn sem teygði sig til norð­aust­urs í átt að Reykja­nes­braut og norður fyrir Keili. „Áfram mælist nokkur smá­skjálfta­virkni í kringum kviku­gang­inn sem mynd­að­ist 1. apríl og mæl­ast tugir skjálfta á hverjum degi á svæð­inu. Stærsti skjálft­inn sem mæld­ist síð­ustu viku var M3,3 að stærð þann 13. Apríl og var stað­settur yfir norð­ur­hluta kviku­gangs­ins um tæpa 4 km ANA við Keili. Lang­flestir skjálft­anna eru undir M2 að stærð og á 2 til 6 km dýpi.“

Áfram er gert ráð fyrir eld­gosum. „Á meðan að kviku­söfnun heldur áfram undir Svarts­engi þarf að reikna með end­ur­teknum kviku­hlaupum og jafn­vel eld­gosum á Sund­hnúks­gíga­röð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi