Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heiðra kvenkyns tónskáld í Salnum

Fannst vanta umfjöllun um konur í tón­list­ar­sögu­tímum.

Heiðra kvenkyns tónskáld í Salnum
Sævar og Tinna Mynd: Aðsend

Tinna Þorvalds Önnu­dóttir mezzósópran og Sævar Helgi Jóhanns­son píanó­leik­ari verða með hádeg­is­tón­leika í Salnum, Kópavogi 30. apríl, frá klukkan 12:15 til 13:00. Ókeypis verður á tón­leik­ana.

Í kynn­ingu á tón­leik­unum segir að þau Tinna og Sævar ætli að heiðra nokkur af minna þekktum tón­skáldum bar­rokk-tím­ans á þessum hádeg­is­tón­leikum en um að er ræða kven­kyns tón­skáld, sem lítið rými hafa fengið í sögu­bók­unum.

Tinna seg­ist í sam­tali við Mannlíf hafa fengið leið á því í tón­list­ar­sögu­tímum að heyra aldrei minnst á konur og ákvað mun síðar að kanna málið og hafi þá fundið „þessa guð­dóm­legu tón­list“.

„Nú veit ég ekki hvort þú upp­lifðir það sama en ég man svo vel þegar ég var í sögu­tímum í skól­anum og lærði beint og óbeint að fólk af mínu eigin kyni hefði aldrei gert neitt sem í frá­sögur var fær­andi. Þegar ég svo full­orðin sat í tón­list­ar­sögu­tímum þá fékk ég leið á þessu og ákvað núna, all­mörgum árum síðar að skoða örfáar hliðar tón­list­ar­sög­unnar sem áður voru mér huldar og upp­götv­aði þá þessa guð­dóm­legu tón­list.“

Segist Tinna hafa áður flutt dag­skránna í októ­ber síð­ast­liðnum og stefni á að flytja hana á Aust­fjörðum einnig.

„Ég flutti þessa dag­skrá á Óperu­dögum í októ­ber síð­ast liðnum í Hörpu­horni ásamt píanist­anum Öldu Rut Vestmann, en þar sem hún býr úti á landi þá skipta þau Sævar mér á milli sín í þessum. Við munum svo halda áfram að vinna með þetta efni og næst á dag­skrá er að flytja tón­leika á Aust­fjörðum ásamt Öldu, hvar hún er einmitt búsett.“

Í lýs­ingu á hádeg­is­tón­leik­unum segir eft­ir­far­andi:

Öll eiga tón­skáldin það sam­eig­in­legt að hafa fæðst konur og hafa þar af leið­andi ekki fengið sinn sess í tón­list­ar­sög­unni þrátt fyrir að hafa verið áhrifa­miklar á sínum tíma. Tón­skáldin sem flutt verða verk eftir eru Francesca Caccini, Barbara Strozzi og Elisa­beth Jaquet de la Guerre. Aðgangur er ókeypis og öll hjart­an­lega vel­komin. Menning á mið­viku­dögum er styrkt af menn­ingar- og mann­lífs­nefnd Kópa­vogs­bæjar.

Hér fyrir neðan má svo sjá kynn­ingu á tón­skáld­unum þremur, eins og þær birt­ust í við­burð­ar­lýs­ing­unni á Facebook:

Francesca Caccini var tón­skáld, söng­kona, lútu­leik­ari og skáld. Hún fædd­ist árið 1587 og lifði til sex­tugs ald­urs. Hún var tví­gift og átti tvö börn. Ópera hennar La liberazione di Ruggiero var fyrsta óperan sem sett var upp eftir kven­kyns tón­skáld. Hún var einnig fyrsta tón­skáldið í sög­unni, óháð kyni, til þess að fá óperu gefna út á prenti- og um tíma var hún hæst laun­að­asta tón­skáld Flór­ens­borgar, en vinnu­veit­endur hennar voru Medici-fjöl­skyldan.

Barbara Stozzi var tón­skáld og söng­kona í Feneyjum sem fædd­ist árið 1619 og lifði til 58 ára ald­urs. Hún átti fjögur börn en gift­ist aldrei. Hún var auk þess ákaf­lega afkasta­mikil og gaf út á prenti meiri söng­músík en nokk­urt annað tón­skáld í Feneyjum um miðja 17. öld­ina.

Elisa­beth Jacquet de la Guerre var tón­skáld og harpsichord leik­ari sem fædd­ist í París 1665 inn í fjöl­skyldu hljóð­færa­smiða. Hún var afar þekkt á sínum tíma og þótti afspyrnu­góður spuna­leik­ari. Hún samdi tón­list af mjög fjöl­breyttu tagi og um tíma vann hún fyrir Loðvík 14 í París. Hún gift­ist einu sinni og átti einn son.

Eins og áður kemur fram verða hádeg­is­tón­leik­arnir fluttir í Salnum, Kópavogi þann 30. apríl frá 12:15-13:00. Tón­leik­arnir eru hluti af tón­leika­röð í Salnum sem heitir Menning á mið­viku­dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu