Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar í klemmu á NATO-fundinum

„Öll“ NATO-ríkin eiga að inn­sigla 5% lands­fram­leiðslu til hern­að­ar­mála á leið­toga­fund­inum, en Kristrún Frosta­dóttir stendur frammi fyrir því að reyna að fá und­an­þágu eða breyttar skil­grein­ingar.

Íslendingar í klemmu á NATO-fundinum
Kristrún og Rutte Kristrún Frosta­dóttir reyndi í lok maí að fá und­an­þágu fyrir Íslend­inga frá því að stór­auka útgjöld til varn­ar­mála. Mynd: NATÓ

Band­ar­lags­ríki NATO eru til­búin að stíga „stórt stökk“ með því að auka útgjöld til varn­ar­mála til að mæta ógn frá Rúss­landi, sagði Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóri banda­lags­ins, í dag, dag­inn áður en tveggja daga leið­toga­fundur hefst. Á fund­inum er fyr­ir­séð að Íslend­ingar verða í vand­ræða­legri stöðu.

NATO-ríkin hafa náð sam­komu­lagi um mála­miðlun, þar sem lág­marki 3,5% af vergri lands­fram­leiðslu verður varið í kjarna­hern­að­ar­mál fyrir árið 2035, og 1,5% í víð­tæk­ari öryggis­tengd mál­efni eins og net­ör­yggi og inn­viði.

Ekki er ljóst hvernig Ísland getur stað­ist þessi við­mið.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið fyrir skemmstu að miðað sé við að útgjöld Íslend­inga til varn­ar­mála auk­ist í 1,5% af lands­fram­leiðslu, í fyrsta lagi eftir 7 ár, árið 2032 eða 2035. Hún vildi þá horfa til þess að end­ur­skil­greina útgjöld sem varnar­út­gjöld. „Til dæm­is inn­viða­fjár­fest­ing, þætt­ir með tví­hliða nota­gildi eins og hafn­ar­mann­virki, vega­fram­kvæmd­ir, flug­vell­ir, netör­ygg­is­mál og við­bún­aður við fjöl­þátta ógn­um,“ sagði hún í við­tali við Morg­un­blaðið. Útjöld Íslend­inga til varn­ar­mála eru nú 0,14% af lands­fram­leiðslu í strang­asta skiln­ingi. Ef Íslend­ingar legðu aðeins 1,5% af er um rúm­lega 70 millj­arða á ári að ræða, sem jafn­gildir öllum hagn­aði sjáv­ar­út­vegs­ins á síð­asta ári.

Trump krefst 5%

Í fréttum í dag segir þó að öll 32 aðild­ar­ríki banda­lags­ins muni heita því að hækka varn­ar­mála­út­gjöld upp í fimm pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu, sem er ein af helstu kröfum Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sem lengi hefur kvartað yfir því að Banda­ríkin borgi of mikið fyrir NATO.

„Fjár­fest­inga­á­ætl­unin í varn­ar­málum, sem banda­lags­ríkin munu sam­þykkja í Haag, setur nýtt við­mið: Fimm pró­sent af lands­fram­leiðslu í varnir,“ sagði Rutte á frétta­manna­fundi fyrir leið­toga­fund­inn.

„Þetta er stórt stökk – metn­að­ar­fullt, sögu­legt og grund­vall­ar­at­riði til að tryggja fram­tíð okkar.“

Að halda Trump góðum

Áhersla fund­ar­ins í Haag verður að halda Trump sáttum, eftir að end­ur­koma hans til valda vakti ótta um að hann gæti grafið undan sjö­tíu ára gömlu banda­lag­inu, sem er horn­steinn varn­ar­stefnu Íslend­inga.

Í aðdrag­anda fund­ar­ins olli Spánn áhyggjum um klofn­ing með því að neita að skuld­binda sig við fimm pró­senta mark­miðið.

En Rutte lagði áherslu á að Spánn hefði ekki fengið neina „und­an­þágu“ frá lof­orð­inu.

„NATO hefur ekki sem banda­lag neinar und­an­þágur, sér­samn­inga eða slíkt – við verðum öll að leggja okkar af mörkum,“ sagði Rutte.

Rutte sagði að aukin útgjöld myndu gera banda­lag­inu kleift að fimm­falda loft­varnir sínar og bæta við þús­undum skrið­dreka og bryn­var­inna öku­tækja í vopna­búrin.

„Áherslan er á að tryggja að við höfum allt sem þarf til að fæla frá og verj­ast hverri ógn,“ sagði hann.

„Að sjálf­sögðu er mest og bein­asta ógnin sem banda­lagið stendur frammi fyrir ennþá Rússland.“

Látið Trump ekki taka eftir ykkur

Fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Donalds Trump, John Bolton, sagði í við­tali við Heim­ild­ina í maí að besta nálgun Íslend­inga í varn­ar­málum væri að láta Trump ekki vita af sér.

„Ég er svo­lítið áhyggju­fullur yfir að einn dag­inn muni hann upp­götva að Ísland hafi ekki her og þar af leið­andi sé fram­lag Íslands til hern­að­ar­út­gjalda um 0,0 pró­sent af lands­fram­leiðslu,“ sagði hann. „„Ég held að ég myndi ekki flýta mér að hitta Donald Trump. Ég myndi und­ir­búa mig. Ég myndi í fyrstu tala við vini mína í NATO, til dæmis önnur Norð­ur­lönd.“

Þá sagði hann hægt að líta á Land­helg­is­gæsl­una sem varn­ar­mál. „„Ég tel að það séu leiðir til, vegna Land­helg­is­gæsl­unnar og ann­arra varnar­úr­ræða sem Ísland hefur alltaf haft, að hægt sé að styrkja þau á þann hátt sem er gagn­legt fyrir NATO og væri í sam­ræmi við starf­semi ann­arra NATO-ríkja.“

„Ef Donald Trump hunsar ykkur í eitt eða tvö ár, þá gæti það reynst ykkur í raun hag­stætt.“
John Bolton í við­tali við Heim­ild­ina

Loks ráð­lagði Bolton Íslend­ingum að und­ir­búa sig vel.

„Í náinni fram­tíð myndi ég ein­blína á spurn­ingar ... eins og að efla getu sem gagn­ast í örygg­is­kreppu og að rækta sam­skipti við aðra. Ísland er nú í ein­stakri stöðu: ef Donald Trump hunsar ykkur í eitt eða tvö ár, þá gæti það reynst ykkur í raun hag­stætt. Þið þurfið bara, áður en þið komið upp á rad­ar­skjá Trumps, að vera viss um að þið séuð und­ir­búin.“

Íslendingar þurfi hugarástand stríðstíma

Kristrún Frosta­dóttir mun sitja leið­toga­fund NATO fyrir Íslands hönd á morgun.

Áður fund­aði hún með Mark Rutte, fram­kvæmda­stjóra NATO, í höf­uð­stöðvum banda­lags­ins í Brussel í lok maí. Eftir fund­inn árétt­aði Kristrún vilja til að skil­greina borg­ara­lega inn­viði sem hern­að­ar­lega.

„Ég vil að Ísland taki virkan þátt og veiti for­ystu í öryggis- og varn­ar­málum í okkar nærum­hverfi. Við munum áfram vinna náið með NATO og auka við­búnað og fjár­fest­ingu í varn­ar­tengdum innviðum á næstu árum – sem geta einnig nýst í borg­ara­legum til­gangi. Það skiptir máli fyrir hags­muni Íslands að við styrkjum getu okkar til að starfa með vina­þjóðum og banda­lags­ríkjum. Rík­is­stjórnin er algjör­lega ein­huga um þetta. Sem birt­ist bæði í nýrri öryggis- og varn­ar­mála­stefnu sem unnið er að undir for­ystu utan­rík­is­ráð­herra og í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar til árs­ins 2030,“ sagði hún.

Á blaða­manna­fundi eftir fund­inn gaf Rutte hins vegar engan afslátt. „Ég veit að Ísland er stolt af hefð sinni sem frið­söm þjóð - og það gerir fram­lag ykkar þess mark­verð­ara. Því til þess að varð­veita frið­inn þarf að skipta yfir í hug­ar­á­stand stríðs­tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum