Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lykilminning um tedrykkju

Hér segir af ungum dreng sem þambaði kaffi í gríð og erg þangað til systir hans stöðv­aði drykkj­una er dreng­ur­inn var fjög­urra ára gam­all

Lykilminning um tedrykkju
Ég drakk kaffi áður en ég kunni að tala Þegar ég byrj­aði að tala hætti ég að drekka kaffi Mynd: Nanna Snorradóttir

Ég byrj­aði mjög ungur að drekka te og kaffi - varla far­inn að labba og babblaði þessu heilu ósköpin um allt og ekki neitt og eng­inn skildi neitt.

Eðlilega. Ég kunni ekki að tala. En þetta virt­ist ekki vera neitt til­töku­mál; ég varð ekki örari af kaffi heldur rólegri og það gæti verið ástæðan fyrir sam­þykktu kaffi­þambi mínu af full­orðnum; mömmu, pabba, barni og bíl.

Það var lík­lega auð­veld­ara að eiga við þennan ofvirka, fjöruga og kjaft­fora strák þegar hann drakk kaffi en þegar hann drakk ekki kaffi.

En um fjög­urra ára ald­ur­inn var kaffi­drykkjan stöðvuð af einni systur minni sem þótti nóg um að lít­ill gutti þambaði kaffi eins og eng­inn væri morg­un­dag­ur­inn né dag­ur­inn þar á eftir.

Þar með var það búið. Í bili. Nokkuð langt bil.

Ég byrj­aði ekki að drekka kaffi aftur fyrr en tveimur ára­tugum síðar - og sú drykkja er enn í gangi þótt magnið hafi minnkað með aldr­inum.

En tedrykkjan var ekki stöðvuð af neinum. Hún hélt áfram - en þegar ég byrj­aði að drekka kaffi aftur lagði ég tedrykkj­una á hill­una svona að mestu.

Þegar mamma og pabbi skildu er ég var fimm ára breytt­ist ég skömmu eftir það í lykla­barn. Mamma vann mikið og ég þurfti að venj­ast því að hún væri ekki heima þegar ég kæmi heim úr skól­anum - því fékk ég lykil að hús­inu og það lík­aði mér vel.

Mér lík­aði skiln­að­ur­inn illa.

En þetta var fyrsta algera frjáls­ræðið sem ég upp­lifði á minni lífs­leið.

Eftir að skóla­deg­inum lauk fór ég heim og hafði tíma fyrir sjálfan mig - kláraði heima­lær­dóm­inn svona oft­ast; stundum þurfti maður hjálp og þá var beðið eftir að hjálpin kæmi heim úr vinn­unni. Síðan lag­aði ég te og not­aði mjólk og sykur út í teboll­ann; ristaði brauð sem ég smurði með smjöri, lagði síðan ost­sneið yfir og yfir hana setti ég síðan sultu eða hlaup. Jafnvel mar­melaði.

Eftir snæð­ing­inn (fyrst var að ganga frá, mamma var mjög ströng) var síðan lesið - kannski um Frank og Jóa, kannski um Bob Moran eða eitt­hvað eftir Enid Blyton. Og hlustað á tón­list á hæsta styrk - enda var eng­inn heima nema ég.

David Bowie varð yfir­leitt fyrir val­inu (köngu­lærnar hans frá Mars eru einu köngu­lærnar sem ég hef haft áhuga á).

I'm an alli­gator. I'm a mama-papa comin' for you.

Eftir allt þetta var svo haldið á æfingu í ann­að­hvort fót­bolta eða hand­bolta, en það var ekki til tími né pen­ingar til að ég gæti æft körfu­bolta líka.

Á þessum tíma (árin 1977 til 1981 bjó ég einn með mömmu) er ég breytt­ist úr venju­legu barni í lykla­barn lærði ég að maður verður að bera sig eftir björg­inni, vit­andi það að alvaldið bætir úr því sem vantar upp á.

Það sagði mamma mér. Það sagði Jensína amma mér. Og það sagði Megas mér.

Ég hefði viljað sleppa við að vera lykla­barn; sem ég varð vegna skiln­aðar tveggja ein­stak­linga sem bjuggu mig til en gátu svo ekki lengur hugsað sér að vera saman.

Ég skildi ekk­ert í því en vissi fljót­lega að ég þyrfti að sjá um mig sjálfur á ýmsan hátt - og það var harður skóli sem ég náði þó góðum tökum á á skömmum tíma því allir aðrir mögu­leikar voru ekki lengur til.

Upp úr þessum tíma óx ungur ein­stak­lingur sem sætti sig við raun­veru­leik­ann en bar harm sinn ávallt í hljóði líkt og þótti til siðs á þessum tíma; framtið­arsál­fræð­ingum og geð­læknum til mik­illar ánægju.

Það voru nefni­lega fleiri eins og ég, en ég komst bara ekki að því fyrr en löngu síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu