Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sósíalistar rífast: „Þegiðu!“

Kærður for­maður Vor­stjörn­unnar leit­aði svara á fundi Sós­í­alista­flokks­ins.

Sósíalistar rífast: „Þegiðu!“
Sanna á fundi Vor­stjörn­unnar Borg­ar­full­trú­inn Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir hefur látið hluta af launum sínum renna í Vor­stjörn­una. Mynd: Víkingur

Mikil óreiða og rifr­ildi ein­kenndu fundi Sós­í­alista­flokk Íslands og upp­haf fundar Vor­stjörn­unnar seinni part­inn í dag, í skugga lög­reglu­kæra og valda­bar­áttu um fjöl­mið­il­inn Sam­stöð­ina og fjár­magn honum tengt, en hann hefur verið fjár­magn­aður af flokknum undir stjórn Gunnars Smára Egils­sonar, fyrr­ver­andi for­manni fram­kvæmda­stjórnar flokks­ins og rit­stjóra mið­ils­ins.

Fjöl­miðlum var vísað úr hús­inu þegar fundur Vor­stjörn­unnar hófst klukkan hálf sex. Ljós­mynd­ari Mannlífs fékk hins vegar að sitja fund Sós­í­alista­flokks­ins í öðrum hluta rým­is­ins sem hefur verið aðskil­inn milli Sam­stöðv­ar­innar, sem stýrt er af fylg­is­fólki fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjórnar, og Sós­í­alista­flokks­ins.

Spurði út í kæru gegn sér

Védís Guð­jóns­dóttir, for­maður Vor­stjörn­unnar, var mætt á fund Sós­í­alista­flokks­ins klukkan hálf fimm. Hún hefur verið kærð af fram­kvæmda­stjórn­inni fyrir meint efna­hags­brot sem tengj­ast fjár­magns­flutn­ingum frá flokknum yfir í tengd félög. Nokkurt upp­steyt varð á fund­inum þegar Védís spurði hvers vegna fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista hefði ekki rætt við þau sem kærð voru til lög­reglu.

Sessu­nautur hennar greip reglu­lega fram í fram­sögu fund­ar­stjóra, Sæþórs Benja­míns Randals­sonar, nýs for­manns, sem tók við af Gunnari Smára fyrir skemmstu. „Þegiðu!“ var kallað að kon­unni.

RifistHér rök­ræða fund­ar­gestir Sós­í­alista­flokks, en konan var síðan beðin að þagna þegar hún hafði gripið fram í fyrir fund­ar­stjóra.
Af fundi Sós­í­alista­flokks­ins.
Formaður stjórnarSæþór Benjamín Randals­son er for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins og stýrði fundi flokks­ins.

„Samstöðin lifir“

Ný fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands hafði gert kröfu á Vor­stjörn­una, vegna þess að stór hluti rík­is­fram­laga til flokks­ins, sem ætluð eru stjórn­mála­flokkum, voru látin renna inn í Vor­stjörn­una og rekstur Sam­stöðv­ar­innar, sem rekin er af öðru félagi, Alþýðu­fé­lag­inu. Gunnar Smári Egilsson er rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar og var einnig for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins.

„Sam­stöðin lifir,“ sagði Þor­valdur Gylfason, á Facebook-síðu sinni, eftir fund­inn. „Örtröð var á aðal­fundi Vor­stjörn­unnar þar sem kjörin var stjórn sem ætla má að muni áfram eiga gott og frið­sælt sam­starf við stöð­ina eins og verið hefur. Hættan er liðin hjá.“

Þar með virð­ist bar­áttan um yfir­ráð yfir Sam­stöð­inni vera yfir­staðin með sigri Gunnars Smára Egils­sonar og félaga hans.

Samstöðin notuð gegn flokknum

Andri Sig­urðs­son, sem hann­aði vef Sam­stöðv­ar­innar, kvart­aði undan því á Facebook í dag að Sam­stöð­inni hafi verið beitt gegn Sós­í­alista­flokknum.

„Sam­stöðin sem var stofnuð af Sós­í­alista­flokknum er nú beitt af fullum þunga gegn flokknum. Ég man ekki eftir öðru eins og við­líka áróðri. Ég fann upp á nafni Sam­stöðv­ar­innar og hann­aði lógóið og smíð­aði vef stöðv­ar­innar. Aldrei hefði mér dottið í hug að stöðin yrði notuð til að ráð­ast á Sós­í­alista­flokk­inn.“

Gunnar Smári Egilsson, rit­stjóri Sam­stöðv­ar­innar, svar­aði honum með því að birta mynd af nýju merki Sam­stöðv­ar­innar og bjóða honum að taka hið gamla til sín aftur.

Í gær kom síðan fram að Sós­í­alista­flokkur Íslands hefði kært for­mann og starf­andi gjald­kera Vor­stjörn­unnar, og svo gjald­kera kosn­inga­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins, fyrir efna­hags­brot sem teng­ist færslu fjár­muna á milli félaga.

Sagði fundinn ólögmætan

Guðberg­ur Eg­ill Eyj­ólfs­son, ný­kjör­inn stjórn­ar­maður í Sósí­al­ista­flokkn­um, full­yrti í grein á Vísi í dag að ekk­ert fé hefði runnið frá Vor­stjörn­unni til þeirra mál­efna sem stjórn­endur hennar hefðu full­yrt að yrðu styrkt. Hann sagði boðun fund­ar­ins ólög­lega, þar sem félags­menn hefðu ekki allir fengið hana.

Annar full­trúi í fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista sagði í dag að fram­lög sem Vor­stjarnan hafi átt að veita til Leigj­enda­sam­tak­anna hefðu í raun ekki borist, en því hefur for­maður sam­tak­anna hafnað. Megnið virð­ist hafa runnið í leigu­greiðslu fyrir hús­næðið í Bolholti, sem og lög­fræði­að­stoð.

Kosið á fundi Vor­stjörn­unnarFjöl­miðlum var vísað út, en í frétt Morg­un­blaðs­ins segir fundi hafa verið slitið þegar spurn­ingar voru lagðar fram um fjár­reiður.

Sanna stendur með eldri stjórn

Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista í Reykja­vík, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttur, hefur tekið afger­andi afstöðu með stjórn­endum Vor­stjörn­unnar og Gunnari Smára Egils­syni, í deil­unni og íhugar nú stöðu sína sem annar af tveimur kjörnum full­trúum Sós­í­alista­flokks Íslands. Gunnar Smári og fleiri við­loð­andi Sam­stöð­ina hafa hvatt stuðn­ings­fólk til þess að mæta, enda gæti „Sam­stöðin lokað í kvöld“.

„Það má ekki ger­ast að yfir­tökuliðið ná líka Vor­stjörn­unni undir sig,“ sagði Gunnar Smári. „Ég hvet því alla sem vett­lingi geta valdið að ganga í Vor­stjörn­una og aðstoða Sönnu og félaga hennar til að verja Vor­stjörn­una og þá hug­sjón sem hún byggir á. Ég er ekki í kjöri til stjórnar og mun ekki skipta mér af þessum fundi með öðrum hætti en að mæta og kjósa með fram­tíð Vor­stjörn­unnar og gegn yfir­töku hennar,“

Harðar deilur eru nú í kjöl­far aðal­fundar Vor­stjörn­unnar og full­yrðir félagi í Sós­í­alista­flokknum að fund­ar­sköp hafi verið van­virt.

Þá segir Morg­un­blaðið að fund­inum hafi verið slitið þegar spurt hefði verið í hvað fjár­munir Vor­stjörn­unnar hefðu runnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum