Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Aldrei aftur tíufréttir

Eftir 35 ára sögu eru síð­ustu seinni fréttir sjón­varps­ins liðnar hjá.

Aldrei aftur tíufréttir
Síðustu tíu­fréttir Frétta­menn­irnir Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir og Hösk­uldur Kári Schram faðm­ast að loknum síð­ustu seinni fréttum sjón­varps í kvöld.. Mynd: Víkingur

„Þetta eru blendnar til­finn­ingar,“ sagði Jóhanna Vigdís Hjalta­dóttir eftir að hún las síð­asta tíu­frétta­tíma RÚV í kvöld.

Starfs­fólk frétta­stofu RÚV faðm­að­ist eftir útsend­ing­una og lok­aði þar með 35 ára sögu seinni frétta sjón­varps­ins.

Seinni fréttir voru orðnar svo sjálf­sagður hluti íslenskrar menn­ingar að Jóhanna Vigdís vís­aði til þeirra með kerskni þegar hún titl­aði aðra mat­reiðslu­bók sína Seinni réttir árið 2009.

Ákveðið hafði verið að leggja niður tíu­frétt­irnar vegna þess að áhorf fólks á línu­lega dag­skrá hefur skroppið saman, um hátt í eitt pró­sentu­stig á ári upp á það síð­asta.

Í beinni frá Alþingi

Í síð­asta frétta­tím­anum gerði frétta­fólk RÚV það sem það hefur nýtt seinni fréttir til öll þessi ár. Þau miðl­uðu nýj­ustu fréttum kvölds­ins og það með beinni útsend­ingu. Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir frétta­kona var þá stödd í hús­næði Alþingis og tók við­tal við Hildi Sverr­is­dóttur, þing­flokks­for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sigmar Guð­munds­son, þing­mann Við­reisnar og fyrr­ver­andi starfs­mann RÚV, um tor­fær þing­lok. Svo fór að sögu tíu­frétt­anna lauk á undan þing­inu.

Tíu­frétt­irnar voru í reynd seinni fréttir sjón­varps­ins. Þær höfðu verið á dag­skrá frá 1988 þegar aðal­frétta­tím­inn var klukkan átta og þær seinni klukkan ell­efu að kvöldi. Árið 1999 voru aðal­fréttir fluttar til klukkan 19, og skaut þá frétta­tíma Stöðvar 2 ref fyrir rass, sem þá var klukkan 19.19 og voru kenndar við tíma­setn­ing­una. Fyrir til­viljun var fyrr í dag sömu­leiðis til­kynnt um enda­lok línu­legs áskrift­ar­sjón­varps Stöðvar 2, sem frá því í júní heitir SÝN.

Í tíu­frétt­unum í kvöld var sömu­leiðis greint frá nýj­ustu fréttum í Banda­ríkj­unum, þar sem Donald Trump for­seti náði naum­lega í gegn fjár­laga­frum­varpi sínu á banda­ríska þing­inu. Þá sagði frá sænskum emb­ætt­is­manni sem sat í fang­elsi í Íran í tvö ár og ótt­að­ist að sjá aldrei fjöl­skyldu sína á ný. Auk þess voru birtar glefsur úr aðal­frétta­tím­anum, meðal ann­ars mynd­skeið af sjö­tíu sjálf­boða­liðum flytja bóka­safn Skál­holts­kirkju úr lekum kirkju­turn­inum. Loks komu íþróttir, þar sem Þorkell Gunnar Sig­ur­björns­son sýndi og lýsti mörkum kvölds­ins í íslenska fót­bolt­anum.

„Góðir áhorf­endur. Þessum síð­asta tíu­frétta­tíma sjón­varps­ins er að ljúka. Og við á frétta­stof­unni þökkum ykkur kær­lega fyrir sam­fylgd­ina hér í gegnum ára­tug­ina,“ sagði Jóhanna Vigdís, áður en birt var mynd­skeið úr Stuðla­gili undir lagi Mugison, Stingum af. „Með þessum myndum og tónum kveðjum við ykkur með síð­asta tíu­frétta­tím­ann. Veriði sæl.“

Að lokum sam­fylgd­inni ræddi Jóhanna Vigdís við Mannlíf í mat­sal RÚV. „Við höldum að þetta sé gæfu­spor,“ sagði hún. „Af því að við munum þegar líður á færa frétta­tím­ann til klukkan átta. Búa þá til stærri og feit­ari pakka. Við ætlum að koma í stað­inn með meiri þjón­ustu.”

Frétta­tím­inn verður þá aftur klukkan átta, en seinni frétt­irnar snúa ekki aftur.

Teymið í kvöld / Frétta­stjór­inn fylgist með / Menn­irnir að baki mynda­vél­anna / Samfylgd lokiðLétt var yfir þéttum hópi á loka­sprett­inum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu