Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Línulegt áskriftarsjónvarp Stöðvar 2 liðið undir lok

Boða „nýjan kafla í íslenskri sjón­varps­sögu“. Spurn­ingar vakna um enska bolt­ann.

Línulegt áskriftarsjónvarp Stöðvar 2 liðið undir lok
Herdís Dröfn Fjeld­sted For­stjóri Sýnar boðar „nýjan kafla í íslenskri sjón­varps­sögu“. Mynd: Aðsend

Línulega sjón­varps­stöðin SÝN, áður þekkt sem Stöð 2, verður ekki lengur áskrift­ar­sjón­varp eins og hún hefur verið frá stofnun árið 1986.

Hins vegar mun streym­isveitan SÝN+ verða fyrir áskrif­endur og birta efnið á undan línu­legu SÝN, án aug­lýs­inga.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­stjóra félags­ins Sýnar, sem rekur sjón­varps­þjón­ust­una SÝN og SÝN+, auk far­síma-og net­þjón­ust­unnar undir sama heiti.

Í til­kynn­ing­unni er því ekki svarað hvort enski bolt­inn, sem félagið SÝN greiddi háar fjár­hæðir til að kom­ast yfir sýn­ing­ar­rétt­inn á, verði í opinni dag­skrá og ef ekki, hvert áskrift­ar­verðið að línu­lega áskrift­arstjón­varpi Sýnar verður. SÝN Sport Ísland býður upp á áskrift að íslenskum íþrótta­við­burðum á 6.990 krónur á mán­uði.

Samruni kynntur

Fyr­ir­tækið Sýn, sem skráð er í kaup­höll­ina, boð­aði sögu­legan sam­runa þegar vöru­merkin Vodafone, fyrir far­síma­þjón­ustu, og Stöð 2, fyrir sjón­varp, voru aflögð.

Ef marka má frétt og aug­lýs­inga­her­ferðir Sýnar um „sam­runa“ vöru­merkja félags­ins frá 12. júní síð­ast­liðnum munu „Voda­fone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sam­ein­ast undir merki Sýnar“. Sam­run­inn er þó ásýnd­ar­legur, enda er um sitt hvora þjón­ust­una að ræða.

„SÝN Sport er nýtt heiti á Stöð 2 Sport og mun stöðin áfram bjóða upp á besta sætið í heimi íþrótta - og er enski bolt­inn þar á meðal,“ sagði í til­kynn­ing­unni 12. júní. SÝN Sport virð­ist hins vegar vera tvær sjón­varps­stöðvar, ann­ars vegar með inn­lendum íþróttum og hins vegar erlendum.

Því má fast­lega búast við því að áskrift­ar­sjón­varp verði enn við­haldið, en að það ein­angr­ist við íþrótta­hlut­ann. Ef svo er hafa stjórn­endur Sýnar valið að „böndla“ ekki saman áskrift­ar­þjón­ustu gömlu Stöðvar 2 og íþrótta­stöðv­anna, og byggja þess í stað á lík­ani Símans, sem bauð upp á enska bolt­ann í áskrift sam­hliða streym­is­þjón­ustu Símans, undir heit­inu Sjónvarp Símans Premium, á meðan línu­lega Sjónvarp Símans var í opinni dag­skrá.

„SÝN gegnir lyk­il­hlut­verki í íslensku sam­fé­lagi sem vett­vangur frétta, íþrótta og menn­ing­ar­legrar upp­lif­unar,“ segir Herdís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar, í til­kynn­ing­unni.

Þá rifjar hún upp að fréttir Stöðvar 2, sem heitir nú sjón­varps­fréttir Sýnar, hafi verið færðar í opna dag­skrá í fyrra, eftir stutt tíma­bil áskrift­ar­lok­unar. „Á síð­asta ári ákváðum við að bjóða sjón­varps­fréttir Sýnar án end­ur­gjalds til lands­manna. Nú göngum við skref­inu lengra og gerum alla dag­skrá línu­legu sjón­varps­stöðv­ar­innar SÝN aðgengi­lega án end­ur­gjalds, í fyrsta skipti í sögu stöðv­ar­innar. Um leið höldum við áfram að mæta breyttum áhorfsvenjum með þjón­ustu sem býður upp á aukið frelsi, meiri upp­lifun, hámhorf og for­skot á inni­hald.“

Rætt um mikla einföldun vörumerkja

Mannlíf greindi frá því fyrst fjöl­miðla í byrjun jan­úar að til umræðu væri að breyta Stöð 2 í SÝN. Samkvæmt heim­ildum innan úr félag­inu var til umræðu að gera mun víð­tæk­ari breyt­ingar.

Nið­ur­staða stjórn­enda félags­ins Sýnar var að láta ógert að breyta heitum útvarps­stöðv­anna Bylgj­unnar og FM957, en fella niður vöru­merkin Stöð 2 og Vodafone, sem fyrr segir.

Félagið Sýn hefur fallið um 22% í kaup­höll­inni á þessu ári. Gengið hækk­aði lít­il­lega þegar innri sam­run­inn var boð­aður, en féll á ný og hefur rétt úr kútnum í litlum við­skiptum.

UPPFÆRT:

Herdís Dröfn sendi Mannlíf svar við fyr­ir­spurn um hvort SÝN Sport yrði í opinni dag­skrá.

„SÝN Sport verður ekki í opinni dag­skrá en þess má geta að SÝN Sport mun leggja mikið uppúr því að bjóða upp á skemmti­lega og vand­aða umfjöllun, þar á meðal um Enska bolt­ann en þar verða 5 þættir sér­stak­lega til­eink­aðir enska bolt­anum. Þeir verða kynntir nánar síðar,“ segir í svari hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara