Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helen Ólafs­dóttir er örygg­is­ráð­gjafi Vill að Ísland snið­gangi vörur frá Ísrael Mynd: Aðsend

Vill að matvöruverslanir sniðgangi vörur frá Ísrael

Helen Ólafs­dóttir hefur starfað fyrir Sam­ein­uðu þjóð­irnar í 18 ár og starfar nú sem örygg­is­ráð­gjafi í Afríku og Mið­aust­ur­löndum. Hún vill að mat­vöru­versl­anir á Íslandi hætti að kaupa inn vörur frá Ísrael

Helen Ólafs­dóttir sem hefur starfað fyrir Sam­ein­uðu þjóð­irnar í 18 ár og starfar nú sem örygg­is­ráð­gjafi í Afríku og Mið­aust­ur­löndum segir að nú sé „kom­inn tími á form­lega snið­göngu“ og beinir orðum sínum til íslenskra stór­versl­an­ana í tengslum við þjóð­ar­morðið sem fram fer á Gaza.

Helen villað mat­vöru­versl­anir á Íslandi hætti að kaupa inn vörur frá Ísrael. Vill ein­fald­lega að Ísland snið­gangi vörur frá Ísrael.

Hún nefnir að nýverið hafi Co-op, ein stærsta mat­vöru­versl­un­ar­keðja Bret­lands, alfarið hætt „að versla með vörur frá Ísrael. Þetta var ákveðið á hlut­hafa­fundi. Ákvörð­unin sýnir að þegar vilji er til staðar, þá er þetta hægt. Hvers vegna geta mat­vöru­versl­anir á Íslandi ekki gert slíkt hið sama?“ spyr Helen.

Samkvæmt alþjóða­lögum er það óheim­ilt að eiga í við­skiptum með vörur sem koma frá hernumdu land­svæði og segir Helen að Alþjóða­dóm­stóll­inn hafi „einnig stað­fest að ríki hafi skyldu til að forð­ast hvers kyns efna­hags- eða við­skipta­sam­starf sem styrkir ólög­legt her­nám Ísraels á palest­ínsku land­svæði“ og einnig að það er „ekki bara her­námið sem brýtur gegn alþjóða­lögum – það er líka efna­hags­kerfið sem er byggt á her­nám­inu.“

Helen nefnir að það séu til nokkrar „lyk­il­stað­reyndir“ um hvernig hag­kerfi Ísraels byggir á arðráni og kúgun Palest­ínu­manna og nefnir arð­rán á auð­lindum Palest­ínu; Ísrael hefur yfir­ráð yfir grunn­vatns­bólum og rækt­an­legu landi á Vest­ur­bakk­anum og notar það fyrir eigin byggða­stefnu, á meðan Palest­ínu­menn fá tak­markað aðgengi að lífs­nauð­syn­legum „auð­lindum til land­bún­aðar og fram­færslu. Ísrael nýtir líka nátt­úru­auð­lindir Palest­ínu, svo sem stein­efni, á eigin for­sendum og án sam­þykkis.“

Helen bendir einnig á að „hern­að­ar­væð­ing hag­kerf­is­ins í Ísrael er leið­andi í fram­leiðslu og útflutn­ingi vopna“ og einnig að „ný tækni er þróuð og prófuð í beinum hern­að­ar­að­gerðum á hernumdum svæðum og síðan seld sem „bar­daga­prófuð“ vopn. Þessi iðn­aður er orð­inn burða­rás í efna­hag lands­ins og styrktur með fjöl­þjóð­legum sam­starfs­verk­efnum, eins og F-35 flug­vél­ar­verk­efn­inu undir for­ystu Banda­ríkj­anna.“

Þá færir Helen það í tal að kerf­is­bund­inni kúgun á efna­hags­þróun sé beitt og að Palest­ínu­menn búi við strangar ferða­tak­mark­anir, höft á við­skiptum og leyfis­kerfi sem gera frum­kvöðla­starf­semi nán­ast ómögu­lega:

„Að auki eru inn­flutn­ings­listar og tak­mark­anir á fjár­málum not­aðar til að veikja atvinnu­líf og byggja upp háð Ísra­elsku hag­kerfi. Þetta er stefnu­mark­andi „aft­ur­för­ar­stefna“ sem dregur úr getu Palest­ínu­manna til sjálf­bærrar þró­unar“ og afleið­ing­arnar eru „fátækt og sam­fé­lagið verður háð alþjóð­legri hjálp“ og ljær máls á því að afleið­ingar þess­arar „stefnu eru skelfi­legar: atvinnu­leysi, fátækt og sund­ur­tættir inn­viðir. Einkum í Gaza hefur Ísrael kerf­is­bundið gjör­eyði­lagt hverskyns fram­leiðslu­getu og nán­ast alla mik­il­væga inn­viði.“

Helen segir Palest­ínu­menn vara fasta í víta­hring þar sem mögu­leikar til upp­bygg­ingar séu stöðugt kæfðir í fæð­ingu og í raun sé eini kost­ur­inn alþjóð­leg aðstoð:

„Nú er fólk­inu á Gaza neitað um nán­ast alla alþjóð­lega aðstoð því Ísrael stjórnar því hvað fer inn og hvað fer út. Við berum ábyrgð líka Ísland getur og ætti að gera betur.“

Helen vill að stórar mat­vöru­versl­anir hér á landi snið­gangi vörur frá Ísrael og segir að „við getum kraf­ist þess að íslenskar versl­anir, sér í lagi stórar mat­vöru­versl­anir eins og Krónan, Nettó, Hagkaup og Bónus geri það hrein­lega að yfir­lýstri stefnu sinni að hafna öllum vörum frá Ísrael“ og hún vill að við „gerum eins og Co-op og setjum smá metnað í þetta“ því það sé ein­fald­lega „sið­ferð­is­leg skylda“ því Þá þurfi „aktí­vist­arnir ekki að hring­sóla um búð­irnar ykkar í leit af vörum sem er smygglað inn undir öðrum merkjum, hvort sem það eru döðlur eða avókadó.“

Segir ein­fald­lega að lokum að „við eigum ekki að hagn­ast á þján­ingu ann­arra. Þögn er með­á­byrgð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina