Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Urður segir fasisma fara vaxandi

Urður Hákon­ar­dóttir segir skömm að því að Ísland sé í nokkru sam­bandi við Ísrael og vill að við slítum öllum tengslum við landið hið snarasta

Urður segir fasisma fara vaxandi
Donald, Kristrún og Þor­gerður Katrín Urður segir það ein­fald­lega stað­reynd að Ísrael fremji þjóð­ar­morð Mynd: Samfylkingin

Urður Hákon­ar­dóttir segir skömm að því að Ísland sé í nokkru sam­bandi við Ísrael og vill að við slítum öllum tengslum við landið hið snarasta.

„Al­þjóða­lög eða lög­leysa?“ spyr hún í opnu bréfi „til Kristrúnar Frosta­dóttur og Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur.“

Urður, sem er stílisti, bún­inga­hönn­uður og tón­lista­kona, segir að það sé „erfitt að vera mann­eskja í þessum heimi þar sem sam­tím­inn er orð­inn dystópískur, finnst ykkur það ekki? Fas­ism­inn fer vax­andi og sam­kennd dvín­andi, það hefur verið rann­sakað.“

Urður sér þó ekki bara myrkur og illsku í ver­öld okkar heldur einnig „feg­urð“ í heim­inum en hún seg­ist nú um stundir hrein­lega ekki „finna hana“ og það finnst Urði vera „eitt­hvað svo ótrú­lega skakkt“ og að þessi vonda til­finn­ing sé eitt­hvað sem við „finnum það flest, ekki satt? Allavega þau okkar sem enn hafa sam­kennd.“

Urður bjóst ekki við því, frekar en flestir aðrir, að framið yrði þjóð­ar­morð á Gaza og að börnum yrði slátrað eins og búfén­aði:

„Ég hélt, eins og margir að þegar það kæmi að börnum, yrði línan dregin. Varla getur fólk horft upp á sak­laus börn drepin, svelt, þeim mis­þyrmt eða þau mis­notuð?“ spyr hún og bætir því við að í „Banda­ríkj­unum mega hátt­settir menn stunda mann­sal og nauðga börnum án afleið­inga fyrir þá. Þeir eru jú svo sjar­mer­andi.“

Urður segir einnig að í „Ísrael mega menn hunsa alþjóða­lög og svelta börn og skjóta þau í höf­uðið á færi. Og öll hin löndin sem hafa skuld­bundið sig til að halda uppi þessum alþjóða­lögum kjósa að líta undan hryll­ingnum. Án afleið­inga, eða hvað?“

Hún spyr:

„Hverjar verða afleið­ingar þeirrar lög­leysu sem við­gengst á alþjóða­vett­vangi? Hvert verður gjald með­virkn­innar?“

Urður segir að „mörkin skekkj­ast meir og meir, ekki bara úti í heimi heldur líka hér heima. Gjaldið mun koma og það verður hátt. Ísrael brýtur ítrekað alþjóða­lög, eru yfir­lýstir stríðs­glæpa­menn og fremja þjóð­ar­morð fyrir allra augum.“

Hún spyr „hvernig ráða­menn heims­ins fá það af sér að horfa upp á 90 börn vera svelt til dauða í beinni útsend­ingu á meðan mat­ar­gjafir mygla í tonna­vís í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð frá þeim fær mann til að missa alla trú á mennsku ráða­manna og kerf­is­ins sem við lifum í.“

Urður segir að fimmta hvert barn á Gaza þjá­ist af vannær­ingu sem gerir um 200.000 börn og hún segir einnig að það sé ekki bara „Ísrael sem brýtur alþjóða­lög, heldur öll þau ríki sem hafa skuld­bundið sig til að fylgja Þjóð­ar­morðs­sátt­mál­anum (Convention on the Prevention and Pun­is­h­ment of the Crime of Genocide (CPPCG)) sem gerður var að alþjóða­lögum 9. des­em­ber 1948.“

Sáttmáli þessi var gerður til þess að forða nákvæm­lega því sem á sér stað á „Gaza frá því að ger­ast“ og að „skuld­bind­ing við sátt­mál­ann felur í sér að bregð­ast við og aðhaf­ast verði maður vitni að eða hafi vit­neskju um að við­líka atburðir séu að eiga sér stað.“

Hún bendir á þá stað­reynd að „Ísland, sem aðilda­ríki að sátt­mál­anum, ber laga­lega skyldu til að aðhaf­ast.“

Og Urður spyr for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra hvort skilja megi „aðgerð­ar­leysi ykkar sem svo að Íslenskum stjórn­völdum finn­ist þau eins og banda­rískum, rúss­neskum og ísra­elskum stjórn­völdum, hafin yfir alþjóða­lög eða stætt á að hunsa þau?“

Hún bendir á að „þetta aðgerð­ar­leysi grefur undan stoðum þess reglu­kerfis sem alþjóða­sam­fé­lagið byggir á og smættar gildi alþjóða­laga“ og spyr einnig „hvers virði eru lög og reglur? Hvernig eigum við borg­arar heims­ins að hafa trú á kerf­inu sem við lifum í þegar ráða­menn hunsa þau lög og reglur sem þeir hafa svarið eið um og skuld­bundið sig til að fylgja.“

Að mati Urðar er tján­ing­ar­frelsið orðið mis­skipt og hún segir að „almúg­inn mætir víðs­vegar alvar­legum afleið­ingum tjái þau sig frjáls­lega. Á meðan ráða­menn mega tjá sig með hætti sem hingað til hefur verið ástæða til afsagnar þeirra úr starfi. Frið­sam­legum mómæl­endum víðs­vegar um heim og hér heima er mætt með ofbeldi sem rétt­lætt er með gas­lýs­ingum um órétt­mæti afstöðu mót­mæl­enda. Á Alþingi Íslands er rætt um að vísa ungum manni sem misst hefur fjöl­skyldu og vini í hel­för­inni á Gaza úr landi fyrir að sletta máln­ingu.“

Segir Urður að margir íslenskir stjórn­mála­menn hafi gert „stærri mis­tök, meira að segja oft og ítrekað. Sumir þeirra hafa framið lög­brot án afleið­inga; hvað þá alvar­legra afleið­inga. Ungur maður slettir máln­ingu á ljós­mynd­ara og þing­heimur fer á hlið­ina.“

Hún segir að á „Gaza mæta ljós­mynd­arar og blaða­menn öðru og verra en máln­ing­ar­slettum. Þeir eru pynt­aðir og myrtir af Ísra­els­her. En það virð­ist ekki fara jafn mikið fyrir brjóstið á íslenskum ráða­mönnum. Kannski er þeim fyr­ir­munað að setja sig í spor þessa unga manns sem hlaut skjól hér á landi. Þess vegna er máln­ing og glimmer kannski það hræði­leg­asta sem þeim dettur í hug? Því þau hafa ekki lent í því verra.“

Hún ljær máls á því að á sama tíma og „meintur nauð­gari og barn­a­níð­ingur, yfir­lýstur kven­hat­ari og ras­isti vann for­seta­kosn­ingar í Banda­ríkj­unum fengum við á Íslandi kven­stjórn. Tveir and­stæðir pólar, vona ég.“

Hún seg­ist oft „í gegnum tíð­ina velt því fyrir mér hvernig málum væri háttað ef heim­inum væri stjórnað af konum. Hvort það væri far­sælla og því fyllt­ist ég eft­ir­vænt­ingu að sjá hvort það yrði sann­leik­ur­inn. Konur sem ég hitti í kjöl­far kosn­ing­ana, á öllum aldri og úr öllum kimum sam­fé­lags­ins, upp­lifðu svip­aða eft­ir­vænt­ingu. Mun það breyta ein­hverju að konur sitji við stjórn­völ­inn?“

Urður spyr af hverju Ísland sé ekki búið að slíta öllu sam­bandi við Ísrael:

„Þið, sem vermið æðstu sæti rík­is­stjórnar Íslands, af hverju slítið þið ekki stjórn­mála og við­skipta­sam­bandi við Ísrael? Hvaða hags­munum Íslands stafar hætta af þeirri aðgerð? Er Ísland háð með­virkni með sjar­mer­andi barn­a­níð­ingi, er hann sá sem við viljum ganga í augun á? Og fyrir hvað? Fyrir hvað standa íslenskir stjórn­mála­menn?“

Urður færir í tal að heim­ur­inn hafi minnkað með til­komu nets­ins og að „við erum ekki ein­göngu borg­arar lands­ins sem við búum í. Við til­heyrum líka alþjóða­sam­fé­lag­inu og í reynd mann­kyn­inu öllu. Viljið þið verja hags­muni pen­inga eða fólks?“ spyr hún og bætir því við að „þið hafið sagt að ef aðrir bregð­ist við þjóð­ar­morð­inu á Gaza munuð þið fylgja. Af hverju ekki að taka af skarið og vera boð­berar kær­leika, friðar og sam­kenndar. Ekki sveifl­ast eins og strá í vindi eftir því hvert stærstu hrekkju­svín heims­ins blása. Það er ekki svo langt síðan við vorum undir hælnum á annarri þjóð, bless­un­ar­lega þurftum við ekki að upp­lifa þann hryll­ing sem palest­ínskt fólk lifir og deyr við.“

Urður beinir enn og aftur orðum sínum til Kristrúnar og Þor­gerðar og segir:

„Verið fyr­ir­myndir ungra íslend­inga og fylgið lögum og reglum. Þið krefj­ist þess af okkur borg­ur­unum og ég krefst þess af ykkur. Þið eruð for­svars­menn þjóð­ar­innar. Verum þjóðin sem gerir hlut­ina öðru­vísi, sýnum sjálf­stæði og þor. Sýnum sam­kennd og náunga­kær­leika. Sýnum frum­kvæði og búum hinum lönd­unum sem líka bíða eftir að ein­hver taki af skarið far­veg til að taka afstöðu með börnum, með friði, með manns­lífum, gegn þjóð­ar­morði, gegn spill­ingu og gegn lög­leysu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina