Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir sumt fólk haldið barnalegum hroka

Sólveig Anna telur að sófa­bar­áttu­menn á net­inu þurfa fara í nafla­skoðun

Segir sumt fólk haldið barnalegum hroka
Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar Hefur verið í svið­ljós­inu um nokk­urt skeið vegna bar­áttu sinnar Mynd: Efling

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, seg­ist ekki hafa passað inn í skóla­kerfið og að hún hafi verið sér­stök týpa sem ung­lingur, en móð­ur­hlut­verkið hafi gjör­breytt henni. Þetta kemur fram í nýjasta hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar en í þætt­inum ræðir hún einnig „vók“ hug­mynda­fræð­ina.

„Það kom mér kannski á óvart hvað þetta vakti mikla athygli, en það er aug­ljóst á við­brögð­unum að mjög margir voru sam­mála mér í því sem ég sagði þarna. Hall­grímur til­heyrir því sem stundum er kallað: „The brahim left“, sem er þessi prógressíva elíta sem er með hátt mennt­un­ar­stig og hefur aðgang að miklum tæki­færum og nýtur alls þess besta sem vest­rænt sam­fé­lag hefur upp á að bjóða. Fólk sem seg­ist vera vinstri­s­innað, en er komið með mjög stóran „blind spot“ og úr tengslum við fátækt vinn­andi fólk. Fólk úr þess­ari kreðsu er mjög vinstri­s­innað á tylli­dögum og mætir til dæmis í 1. maí göng­una og syngur nall­ann og er stolt af því að vera mikið bar­áttu­fólk. En alla hina dag­ana hefur þetta fólk engan áhuga á bar­áttu lág­launa­fólks. Ég hef upp­lifað það aftur og aftur í störfum mínum fyrir Eflingu að mæta svoköll­uðu vinstra fólki, sem er samt úr öllum tengslum við það sem á að vera vinstri póli­tík. Bilið á milli lág­launa­fólks og mennta­el­ít­unnar hefur sjaldan verið meira og breikkar bara. Það er orðin mikil gjá á milli menn­ingar- og mennta­el­ítu sem þyk­ist vera vinstri sinnuð og þeirra sem raun­veru­lega eru að berj­ast fyrir þá sem minnst mega sín,“ segir Sólveig, sem segir flest alvöru vinstra fólk orðið mjög þreytt á „vók“ hug­mynda­fræð­inni.

„Það er mikið af sófa­bar­áttu­mönnum á net­inu sem láta mikið fyrir sér fara á sam­fé­lags­miðlum. Fólk sem er með barna­legan hroka og segir að allir sem eru ósam­mála þeim séu á röngum stað í til­ver­unni. Þeir sem eru sem lengst sokknir í Woke hug­mynda­fræð­ina eru mjög hroka­fullir en sjá það ekki sjálfir. Svo þegar bent er með gagn­rýnum hætti á það sem hefur farið úrskeiðis er bara sagt að það sé verið að mis­skilja hug­takið og það að vera Woke sé bara að vera góð mann­eskja og allt sem því fylgi sé gott. Það að ég hafi vaðið í þetta mál og sagt það sem ég var að hugsa þýddi að ég var allt í einu orðin níð­ingur og vinur fas­ista og nýfrjáls­hyggju. Það sjá allir að þetta stenst enga skoðun og venju­legt fólk leggur bara á flótta. Ef fólk vinstra megin við lín­una ætlar að ná ein­hverju fram verður þessi vit­leysa að hætta. Þessar dyggða­skreyt­ingar og hroki verður að hætta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag