Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gugga Lísa kveður móður sína

„Tónlist getur verið svo mik­ill far­vegur fyrir bæn, kveðju og lækn­ingu.“

Gugga Lísa kveður móður sína
Gugga Lísa Tón­list­ar­konan kveður móður sína með nýju lagi Mynd: Aðsend

Tón­list­ar­konan Gugga Lísa, eða Guðbjörg Elísa Haf­steins­dóttir, hefur gefið út nýtt og per­sónu­legt lag sem ber tit­il­inn Eng­ill­inn minn. Lagið kom út föstu­dag­inn 12. sept­em­ber og er samið í minn­ingu móður hennar, Krist­ínar Snæfells Arn­þórs­dóttur, sem lést úr krabba­meini árið 2021 eftir stutta og erf­iða bar­áttu.

Kristín Snæfells Arn­þórs­dóttirMóðir Guggu lést árið 2021 eftir stutta bar­áttu við krabba­mein

Gugga segir að lagið sé eitt það per­sónu­leg­asta sem hún hefur samið:

„Fljúgðu, eng­ill­inn minn“ þessi lína kom til mín áður en mamma kvaddi. Það var eins og inn­sæið vissi áður en raun­veru­leik­inn tók við,“ segir hún

„Restin af lag­inu varð til í kjöl­far frá­falls­ins sem síðan hjálp­aði mér til að takast á við sorg­ina og að sleppa tak­inu af móður minni. Tónlist getur verið svo mik­ill far­vegur fyrir bæn, kveðju og lækn­ingu. Það varð lækn­ing í hjart­anu sem gaf huggun og von. Ég trúi að margir geti speglað sig í þessu lagi,“ bætir hún við.

Kristín var mikil fyr­ir­mynd í lífi dóttur sinnar og studdi hana alla tíð í tón­list­inni. Hún kom meðal ann­ars fram í tón­list­ar­mynd­bandi við lagið Lífið er núna, sem til­einkað var bar­áttu Krafts – félags ungs fólks með krabba­mein og aðstand­enda. Þar sést Kristín berj­ast sem hetja á meðan hún háði sína eigin lífs­bar­áttu. Hún lést skömmu síðar en minn­ing hennar lifir áfram í gegnum tón­list Guggu Lísu.

Nýtt tón­list­ar­mynd­band við lagið Eng­ill­inn minn hefur einnig litið dags­ins ljós og styrkir enn þá per­sónu­legu frá­sögn sem lagið ber með sér.

Lagið er fyrsta smá­skífa af vænt­an­legri plötu Guggu Lísu, Komi Ríki Þitt, sem kemur út 26. sept­em­ber á Spotify. Platan inni­heldur níu frum­samin lög, þar á meðal nokkur í sam­starfi við aðra lista­menn, og fjallar um mátt Guðs, kær­leika, mis­kunn og náð.

Plötuna verður einnig hægt að nálg­ast á vínyl og geisla­diski í Plötu­búð­inni, Kirkju­hús­inu, verslun Alda Music og Jata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu