Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ákall frá fjölskyldu Möggu Stínu

Ákall frá fjölskyldu Möggu Stínu
Magga Stína Mynd: Víkingur

Aðfara­nótt 8.októ­ber 2025 var áhöfn skips­ins Conscience og átta ann­arra báta sem sigldu undir merkjum Frels­is­flot­ans (e.Freedom Flotilla) áleiðis til Gaza rænt af Ísrael á alþjóð­legu haf­svæði. Þeirra á meðal er móðir okkar, systir og dóttir, Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína. Þeim er nú siglt áleiðis til Ashdod hafnar, en við höfum misst allt sam­band við Möggu Stínu og aðra skip­verja. 

Við fjöl­skyldan biðlum til íslenskra stjórn­valda að beita sér með öllum mætti fyrir því að ísra­elsk yfir­völd leysi hana úr haldi taf­ar­laust, sem og aðra í áhöfn Frels­is­flot­ans.

Um borð í The Conscience, skip­inu sem Margrét Kristín sigldi með, voru hátt í hund­rað heil­brigð­is­starfs­menn, blaða­menn og frið­ar­sinnar í full­kom­lega lög­mætum erinda­gjörðum: að koma neyð­ar­að­stoð og heil­brigð­is­starfs­fólki til þjáðra og svelt­andi íbúa Gaza. Um borð voru lífs­nauð­synjar á borð við lyf, hjúkr­un­ar­vörur og mat­ar­að­stoð upp á 13 millj­ónir króna, hjálp­ar­gögn sem er kerf­is­bundið haldið frá Gazasvæðinu af ísra­elskum stjórn­völdum.

Ísrael stendur engin ógn af þeim skipum sem sigla merkjum Frels­is­flot­ans. Engu að síður hafa ísra­elsk stjórn­völd gert skipin sem á undan sigldu upp­tæk með ofbeldi og ógn­unum, rænt skip­verjum og fargað mat­vælum og lyfjum sem um borð voru. Fréttir bár­ust í kjöl­farið af illri með­ferð Ísraels á fólk­inu sem haldið er í Ktzi’ot-fang­els­inu. Þeim hefur verið mis­þyrmt, neitað um nær­ingu, vatn, svefn og lífs­nauð­syn­leg lyf tekin af þeim. Mann­rétt­indi þeirra eru virt að vettugi, rétt eins og Ísrael hefur virt mann­rétt­indi palest­ínsku þjóð­ar­innar að vettugi allt frá byrjun her­náms og þjóð­ar­morðs Ísraels í Palest­ínu. 

Áhyggjur okkar fjöl­skyldu Möggu Stínu og vina hennar eru eðli­lega miklar af fram­vindu mála. Einkum þegar hugað er að þeirri með­ferð sem hún kemur að öllum lík­indum til með að verða fyrir af hendi Ísra­els­hers. 

Við skorum á íslensku rík­is­stjórn­ina og almenn­ing að for­dæma ólög­lega hand­töku Ísraela á almennum borg­urum og krefj­ast þess að allir sjálf­boða­liðar verði látnir lausir taf­ar­laust.

Elsa María Blöndal
Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir
Sólveig Hauks­dóttir,
dóttir, systir og móðir Möggu Stínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Skoðun

Skoðun
Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Skoðun
Dávur í Dali

Streita og kulnun

Skoðun
Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Svanur Már Snorrason
Skoðun
Gunnlaugur Stefánsson

„Tekj­urnar af ánni borga áburð­inn á túnin“

Skoðun
Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Skoðun
Dávur í Dali

Grein sál­fræð­ings um að læra að opna sig