Hitið ofninn í 180°C. Steikið lauk og hvítlauk í olíu við vægan hita þar til hann verður glær og mjúkur. Bætið grænmetinu á pönnuna í þeirri röð sem það er talið upp og steikið áfram í 15 mín., saltið og piprið. Hellið þessu í ofnfast form. Hitið rjóma og ost saman, blandið eggi út í og hellið blöndunni yfir grænmetið. Saltið og piprið og kryddið með tímíani og rósmaríni. Stráið myljunni yfir. Bakið í heitum ofni í 20 mín. eða þar til myljan hefur tekið gullinn lit.
Myljan
100 g hveiti
120 g haframjöl
130 g smjör
salt og pipar
Blandið öllu saman þar til samlagað.
Upphaflega skrifað af Sigríði Bragadóttur






















Athugasemdir