Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Girnd á leiðinni undir jólatréð

Þóra Sveins­dóttir gefur út aðra bók­ina í þrí­leik sínum um Emmu, Þóreyju og Pál

Girnd á leiðinni undir jólatréð
Þóra Sveins­dóttir Út er komin önnur bók Þóru, Girnd Mynd: Víkingur

Þóra Sveins­dóttir gefur út sína aðra skáld­sögu fyrir þessi jól en hún er sjálf­stætt fram­hald af fyrstu bók­inni hennar, sem kom út fyrir síð­ustu jól.

Nýja bók Þóru ber heitið Girnd en í fyrra kom út bókin SJÚK sem vakti verð­skuld­aða athygli.

Það er útgáfu­fé­lag Þóru og eig­in­manns hennar, Dag­bjarts Páls­sonar, EDU eða European Digital Uni­versity sem gefur bók­ina út og fæst hún í öllum helstu bóka­búðum lands­ins.

Að sögn Þóru eru sömu grunn­karakt­er­arnir í báðum bók­un­unum, og eins og sál­fræð­ing­ur­inn Emma og rann­sókn­ar­menn­irnir Þórey og Páll.

„Girnd er önnur bókin í þrí­leik sem ég er að vinna með og von­andi kemur þriðja bókin út um næstu jól. Hún tók mig út fyrir land­stein­ana, til Græn­lands sem er ekki algengur við­komu­staður Íslend­inga þó svo um nágranna­þjóð sé að ræða,“ segir Þóra í sam­tali við Mannlíf.

Segir hún að bókin hafi gefið þeim hjónum tæki­færi á að heim­sækja Grænland.

„Þar sem Grænland flétt­að­ist inn í sög­una gaf það okkur hjónum gott tæki­færi til að heim­sækja það land sem við gerðum með systur minni og hennar manni en Grænland var á fötu­lista okkar allra. Dásam­legt land sem kom skemmti­lega á óvart.“

En fyrir hverja er bókin Girnd?

„Bókin er fyrir alla sem hafa aldur til að lesa glæpa- og spennu­sögur. Það er talað um að lestur sé að drag­ast saman hér á landi en ég verð ekki svo mikið vör við það. Ég er búin að fá að heyra frá mörgum sem ekki hafa lesið í langan tíma að þeir hafi byrjað á bók­inni minni og ekki getað hætt fyrr en þeir voru búnir með hana.“

Þóra seg­ist skrifa á manna­máli og not­ist ekki mikið við „orð­skrum“.

„Ég held ég geti sagt að ég skrifi á manna­máli, það er ekki mikið um orð­skrum. Minnir kannski svo­lítið á talað mál. Ég reyni að höfða til flestra með því að hafa fullt af alls­konar í bók­unum. Þar blanda ég saman húmor, spennu, mann­legum freist­ingum og breysk­leika. Einnig lauma ég mínum pæl­ingum inn eins og með per­sónu­leika­kenn­ing­una og jafn­rétti kynj­anna. Og svo er ég með í báðum bók­unum vís­bend­ingar, litlar vís­bend­ingar sem vísa í átt­ina að morð­ingj­anum.“

Rit­höf­und­ur­inn seg­ist hafa verið komin á síð­asta sjens að klára bók­ina fyrir jólin en með með þraut­segju hafi það náðst og nú er hún jafn­vel byrjuð á þriðju bók­inni.

„Ég var orðin mikið tæp á að ná Girnd fyrir þessi jól. Var alveg að gefa frá mér að ná því þegar ég sett­ist niður og stóð aðeins upp fyrir kló­sett­ferðir og náði þannig að klára korteri fyrir lokun. Ég hélt að ég myndi hvíla skriftir um leið og ég afhenti hand­ritið til prent­unar. Ég var hins­vegar komin á svo mikið flug að ég varð að skrifa mig niður. Tveimur dögum eftir að ég afhenti vænt­an­lega bók byrj­aði ég á þeirri þriðju sem á að vera loka­bókin í þrí­leiknum með Emmu, Þóreyju og Páli.“

Segist Þóra von­ast til að skrifa meira þó hún viti ekki alveg hvort það verði fleiri glæpa­sögur.

„Vonandi held ég áfram að skrifa en það er ekki víst að það verði glæpa­sögur. Það er hell­ingur sem er að gerj­ast í mér en það á allt eftir að koma í ljós.“

En hvernig hafa við­brögðin verið?

„Þegar bók kemur út er ómögu­legt að vita hvort fólki líkar við hana eða ekki. Þess vegna er gott þegar fólk lætur mann vita hvað því fannst um sög­una. Sér­stak­lega þegar það eru góðir dómar. Að sjálf­sögðu les maður það sem fólk skrifar í kommenta­kerf­unum eins og Facebook síðum, á Storytel og fleiri stöðum.“

Segir hún fyrstu bók­ina, SJÚK hafa fengið afar ánægju­lega dóma og að nýja bókin fari vel af stað.

„Bókin SJÚK hefur fengið mjög góða dóma og gengið vel. Ég hef fengið fullt af kommentum sem öll hafa verið jákvæð.

Það er kannski full­snemmt að segja hvernig Girnd gangi en hún virð­ist selj­ast vel núna strax í byrjun og þeir dómar sem ég hef fengið hingað til hafa verið jákvæðir svo ég get ekki annað en brosað hring­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu