Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þóra kemur sterk inn með sína fyrstu skáldsögu: „Fannst eins og ég væri að berskjalda mig“

Þóra kemur sterk inn með sína fyrstu skáldsögu: „Fannst eins og ég væri að berskjalda mig“
Þóra Sveins­dóttir, rit­höf­undur. Mynd: Aðsend

Þóra Sveins­dóttir steig fram á rit­völl­inn fyrir þessi jól með sína fyrstu skáld­sögu en það er bókin Sjúk. Mannlíf ræddi við hana um bók­ina og sitt­hvað fleira.

Hver er Þóra Sveins­dóttir?

Þóra: „Þóra er hug­mynda­ríkur húmoristi með mikla rétt­læt­is­kennd. Hef skrifað tvæ greinar er varða jafn­rétti kynj­anna því til sönn­unar. Ég hef sterkar skoð­anir á hvað þurfi að gera svo jafn­rétti náist. Áhuga­mann­eskja á per­sónu­leika fólks og hef ein­stak­lega gaman af að stúd­era fólk almennt.“

Hefurðu alltaf haft áhuga á skrifum?

Þóra: „Já, ég hef alltaf haft gaman af þeim. Ég skrif­aði mig oft frá hlutum og einnig not­aði ég penn­ann þegar mér sinn­að­ist við ein­hvern og ég komst ekk­ert áfram í rök­ræðum. Þá sett­ist ég niður og skrif­aði allt sem ég vildi segja við við­kom­andi. Það var miklu þægi­legra þannig því við­kom­andi gat ekki mót­mælt neinu á meðan. Stundum afhenti ég bréfið stundum ekki. Mér fannst ég geta skýrt hlut­ina betur út á blaði heldur en í heitum rök­ræðum.“

Þóra með bók­ina.

Hvernig datt þér í hug að skrifa Sjúk og hvar sótt­irðu inn­blást­ur­inn?

„Eftir að fyr­ir­tækið DK hug­bún­aður var selt, en mað­ur­inn minn átti hlut í því fyr­ir­tæki og var einn af stofn­endum þess, varð allt í einu til mikið af lausum tíma,“ svar­aði Þóra og bætti við: „Yngri sonur minn hvatti mig í að skrifa enda vissi hann um áhuga minn og hafði fulla trú á móður sinni, sem var mjög gott fyrir mig.“ Þóra seg­ist hafa átt erfitt með svefn og þá hafi gef­ist tími til að skrifa. 

„Ég fór síðan að eiga erfitt með svefn, fór að vakna milli fjögur og sex á nótt­unni og gat ekki sofnað aftur. Fannst mér þá til­valið að nýta þann tíma og prófa að skrifa eitt­hvað. 

Ég byrj­aði á barna­bók sem ég sendi syni mínum til yfir­lestrar og fékk jákvæðar und­ir­tektir. Ég ákvað samt að gefa hana ekki út. Þarna lang­aði mig miklu frekar að prófa að skrifa glæpa-  og spennu­sögu. Ég hef lesið margar slíkar svo ég taldi að ég ætti að ráða við að skrifa eina. 

Mig lang­aði líka að skrifa um per­sónu­leika­kenn­ingu en það er kenn­ing sem ég heyrði fyrst um 1993 og finnst stand­ast. Hún er nokk­urs konar rauður þráður í gegnum bók­ina.“

Hvernig hafa við­brögðin við bók­inni verið?

Þóra: „Þegar bókin kom úr prenti var ég hálf­feimin við hana og fannst eins og ég væri að ber­skjalda mig, en við­brögð les­enda hafa verið sér­stak­lega góð. 87 ára les­andi sagði mér eftir lest­ur­inn að hún væri frá­bær og spenn­andi og annar les­andi, 85 ára sem er mik­ill lestr­ar­hestur sagði bók­ina skemmti­lega, spenn­andi og með óvæntum endi. Ég hef líka fengið frá les­anda rúm­lega þrí­tugum að þetta hefði verið fyrsta bókin sem hann las í mörg ár því hann hafði alltaf átt erfitt með að ein­beita sér við lestur. Bókin hafi haldið honum við efnið og hann hætti ekki að lesa fyrr en hann var búinn með bók­ina. Nokkrir hafa komið til mín með svip­aða lýs­ingu og finnst mér sér­stak­lega skemmti­legt að heyra þessa dóma. Yngsti les­andi bók­ar­innar sem ég veit um er barna­barn mitt, 16 ára gam­alt, sem sagði ein­fald­lega „Þetta er geggjuð bók, geggjað spenn­andi.“

Við­brögðin hafa verið frá­bær.

Eru fleiri bækur í bígerð, eru það saka­mála­sögur eins og Sjúk eða eitt­hvað allt annað?

Þóra: „Ég er þegar byrjuð á þremur sögum. Einni glæpa­sögu sem er óbeint fram­hald af þess­ari bók, þ.e. með aðal­per­són­unni henni Emmu, en hinar tvær eru meira eitt­hvað sem ég vil segja eða koma á fram­færi. Ég tek ákvörðun fljót­lega eftir ára­mótin með hvaða bók verður fyrir val­inu.“

Aðspurð hvort hún eigi sér ein­hverja upp­á­halds rit­höf­unda segir Þóra ekki svo vera en seg­ist lesa heil­mikið.

„Nei ég held ég hafi ekki beint átt upp­á­halds­höf­und síðan ég var að kom­ast á ung­lings­ald­ur­inn og hélt mikið upp á K.M. Peyton með bæk­urnar um Patrik. En ég les alltaf mikið og er alltaf með bók á nátt­borð­inu, mest af spennu- og glæpa­sögum, svo sem eftir skand­in­av­íska höf­unda.  En um jól og ára­mót les ég mikið af þeim bókum sem koma út um það leytið og þá ekki bara spennu- og glæpa­sögur. Ég hef sér­stak­lega gaman af sál­fræði­tryllum og get nefnt sem dæmi, „Undir yfir­borð­inu“ og „Það sem þernan sér“eftir Freida McFadden, „Óboðinn gestur“ eftir Shari Lapena, „Þögli sjúk­ling­ur­inn“ eft­irA­lex Michaelides og „Í með­ferð“ eftir Sebast­ian Fitzek. Allar mjög spenn­andi og skemmti­legar.“

Fyrir hverja er bókin Sjúk?

„Bókin er fyrir alla. Bæði unga og aldna, lestr­ar­hesta og þá sem hafa ekk­ert lesið. Per­són­urnar í bók­inni eru flestar á aldr­inum 25 ára til  40 ára, svo það mætti ætla að hún sé hugsuð fyrir þann aldur en bókin virð­ist eiga auð­velda leið að les­endum á öllum aldri.“

En er eitt­hvað að lokum sem Þóra vill segja?

„Ég segi bara við alla unga sem aldna, 

„VARÚÐ! Lestur getur haft skað­leg áhrif á fáfræði“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar