Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hin 15 ára gamla Theodóra er ósátt við íslenska réttarkerfið

„Rétt­ar­kerfið á að standa vörð um þau sem minnst mega sín“

Hin 15 ára gamla Theodóra er ósátt við íslenska réttarkerfið
Lands­réttur er annað dóm­stig Íslands Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Theodóra Líf Ara­dóttir er allt annað en sátt við íslenska rétt­ar­kerfið og greinir hún frá þeirri skoðun í pistli sem hún skrif­aði um málið, en hún titlar sig sem 15 ára bar­áttu­konu.

„Rétt­ar­kerfið á að standa vörð um þau sem minnst mega sín, þau sem ekki geta varið sig, og þar á meðal eru börn í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu,“ skrifar Theodóra í pistl­inum sem birt­ist á Vísi. „En þegar litið er til þeirra barna sem búa við erf­iðar félags­legar aðstæður, eiga um sárt að binda vegna van­rækslu, ofbeldis eða flók­inna for­ræð­is­deilna, kemur í ljós að rétt­ar­kerfið bregst oftar en ekki. Í stað þess að vera hluti af lausn­inni, verður það hluti af vand­anum. Það er kerfi sem í sumum til­fellum vinnur gegn börn­unum, þeim sem það á að vernda.“

Hún segir einnig að í fjöl­mörgum málum þar sem börn eru í hættu eða búa við óvið­un­andi aðstæður, geti það tekið mán­uði eða jafn­vel ár, fyrir dóm­stóla að kom­ast að nið­ur­stöðu. „Meðan beðið er eftir úrskurði, lifa börnin í óvissu og óör­yggi. Þau eru föst í aðstæðum sem geta haft djúp­stæð áhrif á þroska, líðan og fram­tíð þeirra. Rétt­ar­kerfið, sem á að tryggja réttar­ör­yggi og vel­ferð, verður þá að kerfi sem tefur úrbætur, staðnar í flóknum ferlum og skorti á sam­hæf­ingu milli stofn­ana,“ heldur hún áfram.

Brot á grundvallarreglum

„Það sem gerir ástandið enn alvar­legra er sú stað­reynd að raddir barn­anna sjálfra heyr­ast of sjaldan í máls­með­ferð­inni. Þótt barnið sé í miðju máls­ins, eru ákvarð­anir teknar af full­orðnum, lög­fræð­ingum, for­ráða­mönnum, starfs­mönnum stofn­ana, án þess að barnið fái raun­veru­legt tæki­færi til að tjá sig eða hafa áhrif á ákvörðun sem snertir líf þeirra djúpt.“

Það felur í sér brot á grund­vall­ar­reglum um rétt barna til þátt­töku í eigin málum, eins og kveðið er á um í Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna að sögn Theodóru. Börn þurfi ein­fald­lega að laga sig að kerfi sem vinnur ekki á þeirra for­sendum að mati hennar.

„Slík afstaða, að líta á börn sem við­föng frekar en virka þátt­tak­endur, sem við­heldur ójafn­vægi og dregur úr mann­rétt­inda­legu vægi mála þeirra. Það þarf ekki að koma á óvart að margir ein­stak­lingar, sem hafa upp­lifað barna­vernd eða for­ræð­is­mál á eigin skinni, lýsa þeim sem tíma van­máttar, kvíða og þögg­unar.“

Börn eigi rétt á réttlæti

Theodóra segir einnig að ef mark­mið rétt­ar­kerf­is­ins er í raun að vernda hags­muni barns­ins, þá verði að ráð­ast í rót­tæka end­ur­skoðun.

„Það þarf að tryggja hrað­ari máls­með­ferð, aukið aðgengi að sér­fræði­kunn­áttu í barna­málum og skipu­lagða, sam­þætta sam­vinnu milli allra þeirra stofn­ana sem koma að mál­inu. Ekki síður þarf að tryggja að rödd barns­ins sé ekki aðeins heyrð, heldur virt og tekin alvar­lega. Kerfið má ekki vera þrösk­uldur, það á að vera brú,“ og að börn eigi rétt á rétt­læti sem er barn­vænt, skil­virkt og mann­úð­legt.

„Þau eiga betra skilið en kerfi sem vinnur bein­línis gegn þeim,“ skrifar bar­áttu­konan að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina