Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bergrún Snæbjörnsdóttir gefur út fyrstu breiðskífuna

Fjöl­margir alþjóð­legir tón­list­ar­menn koam fram á Skinsweeper

Bergrún Snæbjörnsdóttir gefur út fyrstu breiðskífuna
Bergrún Snæ­björns­dóttir Von er á fyrstu breið­skífu Berg­rúnar Mynd: Camille Blake

Tón­skáldið Bergrún Snæ­björns­dóttir gefur út sína fyrstu LP-plötu, Skinweeper, en platan kemur út á vegum Smekk­leysu. Útgáfan verður aðgengi­leg staf­rænt frá og með föstu­deg­inum 23. jan­úar, en vín­ý­lút­gáfa er vænt­an­leg á næstu vikum.

Skinweeper er breið­skífa sem sam­einar tón­smíðar og leiddan spuna í eina heild og á rætur sínar að rekja til fram­sæk­inna strauma í til­raunatón­list. Á plöt­unni eru þrjú verk sem samin voru yfir sjö ára tíma­bil og byggja á abstrakt hug­leið­ingum um umbreyt­ingu orku úr einu formi í annað. Saman mynda verkin heild­stæða frá­sögn þar sem hljóð­heimur og form renna saman. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu um útgáf­una.

Flytj­endur á plöt­unni eru alþjóð­lega þekktir tón­list­ar­menn, þar á meðal William Winant, Kevin Corcoran og Matthias Engler á slag­verk, Theresa Wong og Marrissa Deitz á selló, Kyle Bruckmann á enskt horn, John McCowen á klar­ínettur og Gunn­hildur Ein­ars­dóttir á hörpu. Sam­starfið við flytj­endur var náið og mark­visst, með það að leið­ar­ljósi að draga fram per­sónu­legt sam­band hvers þeirra við hljóð­færi sitt inn í tón­smíð­arnar.

Tónlist Berg­rúnar hefur vakið sívax­andi athygli á und­an­förnum árum og hafa verk hennar meðal ann­ars verið flutt af Fíl­harm­ón­í­u­sveit­inni í Osló, Ensemble Musik­fa­brik í Þýska­landi og Sin­fón­íu­hljóm­sveit Íslands. Hún nam tón­smíðar við Lista­há­skóla Íslands og síðar við Mills College í Kali­forníu, þar sem hún naut leið­sagnar braut­ryðj­enda í fram­sæk­inni til­raunatón­list, á borð við Pauline Oliveros, Fred Frith og Zeenu Parkins.

Bergrún starfar á mörkum ólíkra list­greina og er tón­list hennar oft sam­ofin mynd­list, inn­setn­ingum og heim­speki­legum hug­myndum. Í verkum hennar gegnir hinn sjón­ræni þáttur gjarnan lyk­il­hlut­verki og hlut­verk flytj­enda er opið og spuna­kennt, meðal ann­ars með notkun óhefð­bund­innar nótna­skriftar.

Á meðal nýlegra verka hennar má nefna Agape, sem var frum­flutt á mynd­list­ar­há­tíð­inni Sequences árið 2021, Ecognosis, pantað af International Contemporary Ensemble sama ár, og Roföldur með John McCowen, sem var flutt á vegum INA GRM í Radio France árið 2025. Meðal verk­efna fram undan eru meðal ann­ars verk í tón­leika­lengd fyrir Apparat Ensemble á Myrkum mús­ík­dögum, verk fyrir Yarn/Wire og nýtt tón­leika­langt verk fyrir viibra flautusept­ett í sam­starfi við dans­höf­und­inn Margréti Bjarna­dóttur fyrir Lista­há­tíð í Reykja­vík.

Platan Skinweeper kemur út staf­rænt föstu­dag­inn 23. jan­úar, en nán­ari upp­lýs­ingar um útgáfu vín­ýls verða kynntar síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu