Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp

„Það er ein af frum­skyldum rík­is­ins að tryggja öryggi almenn­ings“

Grímur skipaður í mjög viðeigandi stýrihóp
Grímur Grímsson þing­maður Reyndur lög­reglu­maður þar á ferð­inni Mynd: Víkingur

Dóms­mála­ráð­herra hefur skipað stýri­hóp um stefnu­mótun í lög­gæslu. Hópnum er falið að marka heild­stæða stefnu, skipu­lag og fram­tíð­ar­sýn fyrir íslenska lög­reglu og greina þróun lög­gæslu­mála til lengri tíma.

„Það er ein af frum­skyldum rík­is­ins að tryggja öryggi almenn­ings. Til að standa undir því þurfum við skýra stefnu sem byggir á grein­ingum, raun­hæfri for­gangs­röðun og mæl­an­legum mark­miðum. Með þess­ari vinnu erum við að skapa traustan grunn fyrir lög­gæslu fram­tíð­ar­innar,“ segir Þorbjörg S. Gunn­laugs­dóttir dóms­mála­ráð­herra.

Unnið verður að gerð nýrrar lög­gæslu­á­ætl­unar þar sem sér­stök áhersla verður lögð á að bregð­ast við breyttri þróun brota­starf­semi í sam­fé­lag­inu. Meðal þeirra þátta sem áætl­unin mun taka til eru skipu­lögð brota­starf­semi, mál­efni landamæra, sam­fé­lags­lög­gæsla, kyn­ferð­is­brot, efna­hags­brot og net­brot.

Jafn­framt verður lögð áhersla að sögn stjórn­valda á að efla sýni­leika lög­reglu, styrkja traust almenn­ings til lög­gæslu og auka örygg­is­kennd í sam­fé­lag­inu. Mark­miðið er að tryggja að lög­gæsla taki mið af breyttum aðstæðum og þörfum sam­fé­lags­ins á hverjum tíma.

Við mótun áætl­un­ar­innar segja stjórn­völd að horft verði til reynslu ann­arra Norð­ur­landa og hvernig nýta megi lær­dóm af stefnu­mótun þeirra og stjórn­tækjum í lög­gæslu­málum. Með því er stefnt að því að byggja á bestu þekk­ingu og reynslu sem fyrir liggur á svið­inu.

Stýri­hópur sem fer með vinn­una mun starfa í nánu sam­starfi við öll lög­reglu­emb­ætti lands­ins og lög­reglu­ráð, auk emb­ætta rík­is­ak­sókn­ara og hér­aðs­sak­sókn­ara. Þá verður jafn­framt leitað sjón­ar­miða frá félaga­sam­tökum, fræða­sam­fé­lag­inu og öðrum við­eig­andi stofn­unum til að tryggja víð­tækt sam­ráð við gerð áætl­un­ar­innar.

Gert er ráð fyrir að vinnu hóps­ins ljúki vorið 2026.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum