Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær var samþykkt tillaga um að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna umferðaröryggisaðgerða á nokkrum stöðum í Reykjavík en greint er frá þessu í tilkynningu frá borgaryfirvöldum
Markmið aðgerðanna er að bæta umferðaröryggi, sérstaklega fyrir gangandi vegfarendur og hjólandi, og draga úr hraða bílaumferðar á stöðum þar sem slys hafa orðið eða nálægt gönguleiðum skólabarna. Tillögurnar byggja meðal annars á greiningu á slysagögnum síðustu ára.
Ljóst er að íbúar Laugardals eru mjög sáttir með þessar breytingar en þeir hafa kallað eftir þessum aðgerðum til margra ára.
Einnig eru fyrirhugaðar nokkrar aðgerðir í nágrenni nýs skóla í Múlum til að bæta öryggi gangandi vegfarenda. Þá er áætlað að fara í endurgerð hraðahindrana á nokkrum stöðum í borginni auk þess að lýsing verður bætt.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar
Samkaup semja um kaup á Fjarðarkaupum
Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Athugasemdir