Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur segir Moggann birta ljótar myndir af pólitískum andstæðingum

„Mogginn stendur sem kunn­ugt er vörð um stór­fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi og tengda fákeppni á fjöl­mörgum sviðum.“

Dagur segir Moggann birta ljótar myndir af pólitískum andstæðingum
Dagur B. Egg­erts­son Dagur mynd­ast yfir­leitt mjög vel Mynd: Víkingur

Dagur B. Egg­erts­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir Morg­un­blaðið harð­lega í Facebook-færslu sem hann birti í morgun og segir blaðið beita sér póli­tískt gegn rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur.

Í færsl­unni segir Dagur að umfjöllun blaðs­ins um for­sæt­is­ráð­herr­ann sé ekki til­vilj­un­ar­kennd heldur teng­ist hags­munum.

„Takið eftir því að nú er Mogginn far­inn að birta svip­ljótar (fyr­ir­gefið orða­valið) af Kristrúnu Frosta­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Ástæðan er ekki sú að það sé ekki til fjöldi góðra mynda af Kristrúnu, frá í gær og alla aðra daga. Nei, það er vegna þess að rík­is­stjórn hennar er farin að ógna sér­hags­munum.“

Hann segir jafn­framt að blaðið standi vörð um ákveðna hags­muni í atvinnu­líf­inu.

„Mogginn stendur sem kunn­ugt er vörð um stór­fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi og tengda fákeppni á fjöl­mörgum sviðum. Þá sem hafa tögl og hagldir í íslensku atvinnu­lífi.“

Segir blaðið beita sér pólitískt

Dagur vísar einnig til skrifa stjórn­ar­for­manns Morg­un­blaðs­ins og telur þau stað­festa að blaðið hafi tekið virkan þátt í stjórn­málum.

„Það var athygl­is­verð játn­ing í skrifum stjórn­ar­for­manns Morg­un­blaðs­ins í blað­inu á föstu­dag­inn. Þar sagði hann óum­deilt að Morg­un­blaðið ætti „stóran þátt í algeru hruni“ rík­is­stjórnar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur í þing­kosn­ing­unum 2013,“ skrifar hann og bætir síðar við: „Ég man ekki eftir að það hafi verið sagt svo berum orðum.“

Hann segir þetta sýna að stjórn­ar­for­mað­ur­inn líti á það sem hlut­verk blaðs­ins að hafa áhrif á stjórn­mál.

„Það sem vekur athygli mína er að stjórn­ar­for­mað­ur­inn lítur á það sem hlut­verk blaðs­ins að beita sér flokkspóli­tískt, þá og nú.“

Styður þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB

Í færsl­unni fjallar Dagur einnig um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður um aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu.

Hann segir umræð­una hafa sýnt að erfitt sé að færa rök gegn því að þjóðin fái að segja sitt álit.

„Umræð­urnar end­ur­spegl­uðu að það er erfitt að færa mál­efna­leg rök gegn því að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið,“ skrifar hann. Bæti hann síðar við: „Stjórn­ar­and­staðan skaut­aði létt yfir þá stað­reynd að nán­ast allir flokkar á Alþingi hafi lofað því í kosn­ingum að þjóðin ætti að ráða úrslitum um næstu skref varð­andi aðild­ar­um­sókn­ina.“

Dagur gagn­rýnir stjórn­ar­and­stöð­una og segir hana hafa brugð­ist ókvæða við hug­mynd­inni um að almenn­ingur komi að ákvörð­un­inni.

„Þrátt fyrir þessa for­sögu braust fram í umræð­unni ólund út í þá hug­mynd að almenn­ingur komi að málum.“

Telur ESB-aðild styrkja efnahag

Dagur telur að aðild að Evr­ópu­sam­band­inu geti haft jákvæð áhrif á íslenskt efna­hags­líf, meðal ann­ars með lægri vöxtum.

„Hár fjár­magns­kostn­aður vegna vaxta og verð­bólgu á Íslandi er lands­ins forni fjandi. Það er eitt stærsta hags­muna­mál fyr­ir­tækja og heim­ila að ná fram evru­vöxtum,“ skrifar hann.

Hann segir einnig að upp­taka evru gæti skilað betri kjörum fyrir íslenskt hag­kerfi og aukið sam­keppni.

Að lokum segir Dagur að mik­il­vægt sé að þjóðin fái að taka afstöðu til máls­ins.

„Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan er því mik­il­vægt og jákvætt mál. Og ég ætla að segja já.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum