Spænskur ökumaður hefur ákærður fyrir umferðarlagabrot á Suðurlandi.
Í ákærunni segir að maðurinn hafi ekið bifreið of hratt miðað við aðstæður þar sem vegur var blautur, án þess að hafa fullt vald á bifreiðinni svo hann gæti stöðvað hana á þeim hluta vegar sem fram undan var áður en komið var að hindrun og of nálægt annarri bifreið, sem ekið var á undan í sömu akstursstefnu, allt framangreint með þeim afleiðingum að ákærði ók bifreið sinni aftan á hina og árekstur varð með bifreiðunum þegar sá sem fremri var minnkaði hraða sinn.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands þann 28. maí.






















Athugasemdir