Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Svæðið er sagt „afar hættu­legt“

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu
Gestir létu hætt­una stoppa sig Það var djamm í gær og það er djamm í kvöld. Mynd: ARNAUD FINISTRE / AFP

Um 20 þús­und manns komu saman á ólög­legri teknóhá­tíð á hern­að­ar­svæði nærri bænum Bourges í mið­hluta Frakk­lands um helg­ina, þrátt fyrir við­var­anir yfir­valda um hættu vegna ósprung­inna sprengja á svæð­inu.

Sam­kvæmið hófst á föstu­dag og búast skipu­leggj­endur við að allt að 30 þús­und gestir frá Frakk­landi og nágranna­ríkjum muni mæta þegar mest verður um að vera síðar um helg­ina.

Í yfir­lýs­ingu frá hér­aðs­yf­ir­völdum segir að stjórn­völd hafi gripið til ráð­staf­ana til að tryggja öryggi þátt­tak­enda og draga úr raski fyrir íbúa í nágrenn­inu, þrátt fyrir að við­burð­ur­inn sé ólög­legur.

Philippe Le Moing Surzur, æðsti emb­ætt­is­maður svæð­is­ins, sagði í sam­tali við AFP-frétta­stof­una að svæðið væri „afar hættu­legt“ vegna mögu­legra ósprung­inna sprengja sem þar kynnu að leyn­ast. Hann sagði svæðið hafa verið nýtt í hern­að­ar­legum til­gangi í um 150 ár og að sprengju­sér­fræð­ingar fyndu þar reglu­lega gamlar fall­byssu­kúlur og önnur sprengi­efni.

Þá hvatti hann gesti sér­stak­lega til að halda sig frá skóg­lendi í nágrenni hátíð­ar­svæð­is­ins.

Margir þátt­tak­endur segja sam­kom­una vera bæði tæki­færi til skemmt­unar og mót­mæli gegn hertum lögum og aðgerðum yfir­valda gagn­vart ólög­legum teknóv­ið­burðum í Frakk­landi.

„Ég hafði heyrt að margir myndu mæta, en það er samt áfall að sjá svona mik­inn mann­fjölda á einum stað,“ sagði 22 ára gam­all gestur við AFP undir nafn­leynd.

Annar þátt­tak­andi, 19 ára, sagði mikla þátt­töku senda „sterk skila­boð gegn kúgun“.

Um 600 lög­reglu­menn og 45 slökkvi­liðs­menn hafa verið sendir á svæðið til að sinna örygg­is­gæslu og við­bragðs­þjón­ustu.

Edith Raquin, bæj­ar­stjóri í þorp­inu Cornusse sem er skammt frá hátíð­ar­svæð­inu, sagði í sam­tali við fjöl­miðla að íbúar væru að und­ir­búa sig undir anna­sama nótt.

„Við gætum þurft að vaka alla nótt­ina,“ sagði hún.

Engin alvar­leg atvik höfðu verið til­kynnt þegar síð­ast frétt­ist, en sjúkra- og neyð­ar­þjón­usta hafði sinnt um tug ein­stak­linga vegna minni­háttar meiðsla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife