Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslenski hópurinn klár fyrir Santiago

Sögu­legir Heims­leikar

Íslenski hópurinn klár fyrir Santiago
23 kepp­endur valdir á heims­leika Special Olympics 2027 Mynd: Mynd/skjáskot frá fréttablaði Íþróttafélags fatlaðra

End­an­legt val á þeim íþrótta­mönnum sem munu fara út sem full­trúar Íslands á heims­leika Special Olympics árið 2027 liggur nú fyrir. Leik­arnir verða haldnir í Santiago, höf­uð­borg Chile, dag­ana 16. til 24. októ­ber 2027. Special Olympics á Íslandi fékk úthlutað ákveðnum keppn­isk­vóta og fór val fram í kjöl­far til­nefn­inga.

Íslenski hóp­ur­inn sam­anstendur af 23 kepp­endum sem koma frá níu íþrótta­fé­lögum og þremur golf­klúbbum. Breidd hóps­ins er mikil og eiga mörg sveit­ar­fé­lög full­trúa, en kepp­end­urnir koma frá Reykja­vík, Kópavogi, Garðabæ, Hafn­ar­firði, Reykja­nesbæ, Flúðum, Selfossi, Vest­manna­eyjum, Stykk­is­hólmi og Akureyri.

Full­trúar Íslands munu keppa í eft­ir­far­andi átta íþrótta­greinum:

  • Áhalda­fim­leikum
  • Bad­minton
  • Boccia
  • Frjálsum íþróttum
  • Golfi
  • Lyft­ingum
  • Nútíma­fim­leikum
  • Sundi

Áhersla á ástundun og félagsfærni

Ólíkt Paralympics og Ólymp­íu­leikum fatl­aðra er íþrótta­ár­angur eða mæl­an­leg úrslit ekki mæli­kvarði við val á kepp­endum. Mótið byggir á öðru keppn­is­formi þar sem kepp­endum er skipt í flokka eftir styrk­leika, og hljóta allir þátt­tak­endur verð­launa­pen­inga eða verð­launa­borða fyrir frammi­stöðu sína.

Við val á hópnum var fylgt ströngum við­miðum Special Olympics á Íslandi. Forgang áttu þeir íþrótta­menn sem ekki hafa áður tekið þátt í heims­leikum. Jafn­framt var litið til fram­fara, góðrar mæt­ingar og áhuga á æfingum. Þá er þess kraf­ist að kepp­endur hafi náð 15 ára aldri þegar leik­arnir hefj­ast haustið 2027.

Ríkar kröfur voru gerðar til íþrótta­manns­legrar fram­komu og félags­legrar fyr­ir­myndar. Vegna þess hve umfangs­mikið og krefj­andi verk­efnið erlendis er, er jafn­framt horft til þess að kepp­endur séu heilsu­hraustir og sjálf­bjarga, enda er gert ráð fyrir að hver þjálf­ari hafi umsjón með fjórum kepp­endum á leik­unum.

NES, Reykja­nesbæ

  • Jóel Máni Elorm Þórisson, bad­minton
  • Lena Kristín Her­manns­dóttir, boccia

Ármann, Reykja­vík

  • Sigríður Sig­ur­jóns­dóttir, lyft­ingar
  • Anna Karen Jaf­ets­dóttir, frjálsar íþróttir
  • Kristján Jónsson, frjálsar íþróttir

Bad­mint­on­fé­lag Hafn­ar­fjarðar

  • Dalrós Líf Ólafs­dóttir

Fjörður, Hafn­ar­firði

  • Sigurður Reynir Ármanns­son, lyft­ingar
  • Elsa Sig­valda­dóttir, frjálsar íþróttir
  • Daníel Smári Haf­þórs­son, frjálsar íþróttir
  • Kristrún Helga Þórð­ar­dóttir, sund
  • Frosti Magn­ús­son, sund

Ösp, Reykja­vík

  • Ýmir Snær Bang Hlynsson, sund
  • Nína Margrét Ingi­mars­dóttir, nútíma­fim­leikar
  • María Gísla­dóttir, nútíma­fim­leikar

Gerpla, Kópavogi

  • Katrin Ling Yu Þór­bergs­dóttir, áhalda­fim­leikar
  • Hilmir Sveins­son, áhalda­fim­leikar
  • Viktor Skúli Þór­ar­ins­son, áhalda­fim­leikar

Óðinn Akureyri

  • Kristín Erna Jak­obs­dóttir, sund

Suðri Selfossi / golf­klúbb­ur­inn Flúðum

  • Matthías Máni Elíasson, lyft­ingar
  • Telma Þöll Þor­björns­dóttir, golf

Golf­klúbbur Akur­eyrar / EIK

  • Elías Eyþór Þór­ar­ins­son, golf

Golf­klúbb­ur­inn Mostri, Stykk­is­hólmi

  • Einar Marteinn Berg­þórs­son, golf

Ægir, Vest­manna­eyjum

  • Birgir Reimar Rafnsson, boccia

Sögulegir Heimsleikar Special Olympics í Chile

Slíkir leikar hafa aldrei áður verið haldnir í Suður-Ameríku, en tæp­lega 500 daga nið­ur­taln­ing hófst nýverið í sam­starfi við alþjóða­sam­tök Special Olympics (SOI) og stjórn­völd í Chile. Gíf­ur­legur fjöldi þátt­tak­enda og gesta, en áætlað er að leik­arnir muni laða að rúm­lega 500.000 áhorf­endur og skapi gríð­ar­lega stemn­ingu á keppn­is­stöðum. Helstu tölur bera vott um umfang við­burð­ar­ins:

  • 6.000 kepp­endur mæta til leiks.
  • 170 þátt­tök­u­lönd eiga full­trúa á leik­unum.
  • 2.000 þjálf­arar og aðstoð­ar­fólk fylgja keppn­islið­unum.
  • 6.000 aðstand­endur íþrótta­fólks­ins munu ferð­ast til Santiago.

Glæsileg golfkeppni á virtu svæði

Auk aðal­leik­vangs­ins verður keppt á öðrum fyrsta flokks íþrótta­svæðum í borg­inni. Þar á meðal er hinn kunni klúbbur Prince of Wales Country Club Campo de Golf, en þar mun fara fram keppni í golfi (Level 4 og Level 5) þar sem reynir á mikla nákvæmni og tækni kepp­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Sport

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félags­ins ráð­ast

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings

Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harka­lega