Hann Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, var kampakátur í gær með þær fréttir að byrjað væri að veiða hval aftur við strendur Íslands.
Athygli vöktu hins vegar ummæli hans um að þeir sem væru á móti slíkum veiðum væru með „öfgaskoðanir öfgamanna“. Vilhjálmi er að sjálfsögðu frjálst að vilja hvalveiðar og fagna þeim en í alþjóðlegu samhengi eru skoðanir hans þær öfgafullu. Hægt er að telja þjóðir sem veiða hval á fingrum annarrar handar.
Það verður þó ekki tekið af formanninum að hann hefur barist vel og lengi fyrir réttindum verkafólks á Íslandi en hann þarf einfaldlega að vanda tal sitt ætli hann sér að teljast marktækur mikið lengur ...





















Athugasemdir