Þegar tilkynnt var um að Bjarni Guðjónsson yrði í 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík var gert mikið úr reynslu hans.
Bjarni hefur í gegnum árin verið framkvæmdastjóri KR og starfað hjá VÍS, Ellingsen og Odda og átti að sameina viðskipta- og íþróttalífið í einum manni á listanum. Þeir sem þekkja til Bjarna, sérstaklega í íþróttaheiminum, vita að hann lætur mikið fyrir sér fara og liggur ekki á skoðunum sínum.
Þess vegna kemur það gríðarlega á óvart að Bjarni hafi varla sést síðan hann var tilkynntur í annað sæti og þá sérstaklega eftir að hann var kjörinn í borgarstjórn. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn að nýta Bjarna þá þarf að sleppa honum lausum en það hlýtur að vera betra en að hafa hann áfram ósýnilegan ...































Athugasemdir