Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“

Það kemur á óvart að stjórn­völd ákveði að skera niður í list­kennslu. Steinunn seg­ist eiga list­kennslu svo mikið að þakka!

„Það er eiginlega fáránlegt hvað þetta var eitthvað næs“
„Það er mjög gott að vinna með Gnúsa, enda er hann undra­barn“ Mynd: Í einkaeigu

Söng­konan og alt muglig konan Steinunn Jóns­dóttir er tveggja stráka móðir sem hún segir að séu bestir og eig­in­kona pabba þeirra sem er víst ekki síðri. Með þeim býr Esja, hund­ur­inn þeirra, sem er eins árs gleði­gjafi mik­ill. Blaða­maður hafði sam­band við lista­kon­una sem tekur fram sttraxað hún er hrútur í stjörnu­merki, en það ætti að segja mörgum ýmis­legt, þó svo hún seg­ist hafa róast með aldr­inum. Í dag nýtir hún hvert tæki­færi til þess að eiga góðar stundir með fólk­inu sínu. Þegar hún er eitt­hvað ein að stúss­ast er hún yfir­leitt með ein­hverja góða hljóð­bók í gangi, og ef ekki það þá skemmti­lega tón­list.

Steinunn vinnur sem tón­list­ar­kona, blaða­maður hjá Birtíngi og svo er hún að kenna krökk­unum í Fella­skóla laga­smíðar einu sinni í viku, sem hún segir að sé allt mjög gott og gef­andi.

Gott að geta tappað inn á sköpunarkraftinn hjá hinum

Þú hefur verið að gefa nýlega út eigið efni undir lista­manns­nafn­inu Steinunn á borð við „Á köldum kvöldum“, „Stiklað á stóru“ og „Spóla til baka“. Hvernig finnst þér að vinna sjálf­stætt eftir að hafa verið einn af for­sprökkum tveggja mjög ólíkra en áhrifa­mik­illa hljóm­sveita, Ama­badama og Reykja­vík­ur­dætra?

„Það er búið að vera mjög gaman og líka hollt fyrir mig, bæði sem höf­und og flytj­anda. Í Ama­badama erum við tíu á svið­inu og þar af þrjú að syngja og í Reykja­vík­ur­dætrum höfum við lengst af verið átta, allar að rappa. Þannig að í sköp­un­ar­ferl­inu er maður alltaf að semja með öðrum eða fyrir aðra og þarf því óhjá­kvæmi­lega að gera ein­hvers konar mála­miðl­anir. Á móti er mjög gott að geta tappað inn á sköp­un­ar­kraft­inn hjá hinum þegar hann er við það að tæm­ast hjá manni sjálfum og sér­stak­lega kannski með Reykja­vík­ur­dætrum þá myndi ég segja að við ýtum hvor annarri mjög oft út fyrir þæg­ind­ara­mmann og hjálpum hvor annarri að vaxa.“

Steinunn er að semja út frá sjálfri sér í sól­ó­verk­efn­inu sínu þar sem sköp­un­ar­ferlið hefur að mestu verið bara sam­tal á milli hennar og Gnúsa, manns­ins hennar, þannig að það verður kannski ósjálfrátt enn per­sónu­legra þar sem hún hefur upp­lifað að finnst hún frjáls­ari. „Það að ég sé líka bara að hugsa um mína rödd, alla­vega í flestum lög­unum, verður til þess að lögin henta mér vel og ég nýt þess mjög vel að syngja þau.

En mér finnst bara bæði betra. Við byrj­uðum á þessu sól­ó­verk­efni þegar böndin mín voru í pásu, sem var þægi­legt, og svo núna þegar við erum að verða búin með plöt­una eru þau að vakna úr dvala. Þannig að þetta er full­kom­lega tíma­sett allt saman.“

Sólólögin þín hafa verið mjög gríp­andi. Hvernig myndir þú lýsa þínum per­sónu­lega hljóð­heimi miðað við það sem þú gerðir áður?

„Mér finnst þetta alveg vera fram­hald af því sem við Gnúsi vorum að gera með Ama­badama. Þetta er nátt­úru­lega reggae og svo er Gnúsi að semja lögin með mér og er dálítið allt í öllu í stúd­íó­inu, útsetur, spilar á hljóð­færin, hljóð­blandar og tekur upp – eins og hann gerði og gerir með Ama­badama. Þannig að þetta sól­ó­verk­efni er bara fal­legt rót­ar­skot af Ama­badama-trénu, sem við rækt­uðum saman.“

Það kveður samt alveg við nýjan tón, segir Steinunn. „Ég hlusta mikið á gull­aldar regga­etón­list og er inn­blásin af henni, elska að leika mér með vibradó í söngnum – sem er eitt­hvað sem er mikið gert í reggae. En á sama tíma held ég mikið upp á íslenskar dæg­ur­laga­söng­konur á borð við Ellý Vil­hjálms, Erlu Þor­steins og fleiri, og ég er inn­blásin af þeim líka. Síðan ólst ég upp í kór og spil­aði á víólu, þannig að það hefur örugg­lega áhrif á það hvernig ég sem og syng.“

Hafa hvetjandi áhrif á hvert annað

Hvenær megum við búast við breið­skífu frá þér?

„Hún er alveg að koma. Við ætlum að leggj­ast yfir það sem eftir er í sum­ar­frí­inu.“

Þú og mað­ur­inn þinn, Gnúsi Yones, vinnið mikið saman. Hvernig ganga tón­smíð­arnar fyrir sig á heim­il­inu? Myndast ein­hvern tím­ann ágrein­ingur um takt eða texta­línu?

„Ég man ekki til þess, enda erum við með frekar svip­aðan smekk. Ef annað okkar kemur með ein­hverja gagn­rýni er hitt yfir­leitt sam­mála og jafn­vel búið að hugsa það líka.
Það er mjög gott að vinna með Gnúsa, enda er hann undra­barn. Mér finnst við hafa hvetj­andi áhrif hvert á annað og við höfum mikla trú á hvert öðru. Það er frekar mik­il­vægt finnst mér í skap­andi sam­starfi! Jákvæð orka og sköp­un­ar­gleði.“

„Það hlýtur að vera hægt að finna pening“

Hvað er það mik­il­væg­asta sem þú tókst með þér úr sam­starf­inu við Reykja­vík­ur­dætur?

„Það mik­il­væg­asta er vin­áttan! Ég lít á þær og þeirra fólk sem fjöl­skyld­una mína, enda höfum við gengið í gegnum ansi margt saman á þessum tólf árum sem við höfum verið hljóm­sveit. Minn­ing­arnar eru líka mik­il­vægar. Þær eru líka allar svo fyndnar og skemmti­legar og miklir grall­arar, og ég elska að hlæja og grall­ar­ast. Það er eig­in­lega fárán­legt hvað þetta var eitt­hvað næs. Að fá að túra heim­inn með vin­konum sínum, búa til tón­list og flytja hana fyrir fjöld­ann.“

Steinunn segir að vinnu­lega hafi þetta verið hinn mesti og besti skóli. „Ég hef oft hugsað að ef það væri hægt að meta það sem við höfum lært af þessu sam­starfi sem nám þá værum við allar með dokt­ors­gráðu í alls konar hlutum, ég held að það sé eng­inn betri í teym­is­vinnu.“

Þú hefur haldið tón­list­arsmiðjur fyrir börn og ung­linga. Hvað kemur þér mest á óvart við sköp­un­ar­gáfu krakka í dag?

„Ég hef unnið svo lengi og mikið með börnum að það kemur mér í raun ekk­ert á óvart hvað þau eru skap­andi og skemmti­leg, en það er alltaf jafn gef­andi að kenna og halda smiðjur fyrir börn.

Ef eitt­hvað kemur mér á óvart þá er það þegar stjórn­völd ákveða að skera niður styrk­veit­ingar og þrengja að þeim sem eru að sinna börn­unum okkar. Ég á tón­listar- og dans­skól­unum sem ég fékk að alast upp í og öllum kenn­ur­unum mínum svo mikið að þakka. Allt þetta auka­nám sem for­eldrar mínir leyfðu mér að stunda fyrir utan hefð­bundnu skóla­skyld­una kenndi mér svo mikið – félags­færni, vinnu­semi, að hugsa í lausnum og svo afskap­lega margt annað. Það hlýtur að vera hægt að finna pen­ing ann­ars staðar.“

Það eru liðin rúm tíu ár síðan „Hossa Hossa“ varð að stórsmelli. Verðurðu ein­hvern tím­ann þreytt á því lagi eða fyllist þú alltaf sömu gleð­inni?

„Ég er alla­vega ekki orðin leið á því ennþá! Kannski væri ég orðin þreytt á því ef við hefðum verið að gigga á fullu síðan lagið kom út, fyrir 12 árum! En það var afskap­lega gaman að end­ur­nýja kynnin við það þegar við komum saman á ný í fyrra og svo er stemn­ingin alltaf jafn­góð á tón­leikum þegar við tökum það þannig að gleði alla leið!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu