Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“

Það er veisla framundan

„Stundum borgar sig að dreyma stórt“
Haukur Páll Árnason Mynd: John Russell

Tón­list­ar­mað­ur­inn Haukur Páll Árnason er einn þeirra sem standa að tón­leika­við­burði á Hjarta­torgi á Menn­ing­arnótt.

Upp­haf­lega stóð til að halda fremur litla tón­leika en áformin tóku fljótt að stækka eftir að skipu­leggj­endur fengu styrk úr Menn­ing­ar­næt­ur­potti Lands­bank­ans og Reykja­vík­ur­borgar.

Haukur Páll segir að upp­haf­lega hafi hug­myndin verið að bjóða upp á tón­leika með tón­list­ar­fólki sem teng­ist stúd­íói þeirra, þar á meðal KA-OSS, R.O.K og Trausta~. Aron, söngv­ari KA-OSS, hafi síðan rek­ist á aug­lýs­ingu um styrki úr Menn­ing­ar­næt­ur­pott­inum.

„Ég hafði þá strax sam­band við umboðs­kon­una mína Sonju til að kanna þetta nánar. Góðar hug­myndir verða að veru­leika þegar hún tekur við kefl­inu,“ segir Haukur Páll.

Styrkur fékkst til verk­efn­is­ins og í kjöl­farið var ákveðið að hugsa stærra. Matthias Moon og Árni, trommu­leik­ari KA-OSS, bætt­ust í hóp skipu­leggj­enda og hefur und­ir­bún­ingur staðið yfir af fullum krafti.

Fannst gaman að fara þangað sem krakki

Mark­miðið er að sögn Hauks Páls að skapa lif­andi og aðgengi­legan við­burð þar sem ólíkir tón­list­ar­menn koma saman. Auk tón­list­ar­innar verða ýmsir sölu­básar á torg­inu, meðal ann­ars frá Wabi Sabi, Palest­ínu Blóm og Rig­ens­borg, auk þess sem rak­arar frá Studio 110 verða á staðnum. Hefjast tón­leik­arnir klukkan 14:00 og lýkur þeim klukkan 21:00

Haukur Páll segir Hjarta­torg hafa orðið fyrir val­inu vegna stað­setn­ingar þess og sögu. Hann minn­ist sér­stak­lega gamla Hjarta­garðs­ins, sem var á árum áður vin­sæll sam­komu­staður hjóla­bretta­fólks, lista­manna og veggja­lista­fólks.

„Sjálfur elskaði ég Hjarta­garð­inn og fannst alltaf gaman að kíkja þangað sem krakki en ég sé einnig mögu­leik­ana sem torgið býður upp á í dag,“ segir hann.

Hann segir lífið á torg­inu hafa auk­ist mikið á síð­ustu árum og það sé sér­stakt að fá að leggja sitt af mörkum til menn­ing­ar­lífs þar. Úti­tón­leikar í mið­borg­inni gefi fólki jafn­framt færi á að rekast óvænt á tón­list, staldra við og taka þátt í stemn­ing­unni.

Fjöl­breytni verður í fyr­ir­rúmi í tón­list­ar­dag­skránni og segir Haukur Páll að skipu­leggj­endur vilji gefa ólíkum flytj­endum tæki­færi til að koma fram fyrir stóran hóp gesta. Vonin sé einnig sú að gestir upp­götvi tón­list­ar­fólk sem þeir hafi ekki áður heyrt í.

„Svo var draumur að fá Saint Pete og Inspector Spacetime til að koma fram. Stundum borgar sig að dreyma stórt,“ segir Haukur Páll.

Ýmislegt framundan hjá Hauki

Sjálfur hefur hann í nógu að snú­ast um þessar mundir. Auk þess að koma fram undir eigin nafni er hann með­limur í nýju hljóm­sveit­inni R.O.K og starfar jafn­framt áfram sem pródúser og laga­höf­undur með öðrum lista­mönnum.

Næstu daga er þó Menn­ing­arnótt efst á baugi.

„Menning er virki­lega mik­il­vægur hluti af sam­fé­lag­inu. Þetta dregur okkur saman, myndar sterk­ari heild og eykur kær­leika milli ólíkra hópa,“ segir Haukur Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu