Valkyrjan Inga Sæland er í miklum vandræðum eftir að Guðmundur Ingi Kristinsson, nánasti bandamaður hennar og fyrrverandi ráðherra, upplýsti að hún hefði gert tilraun til að reka sig úr ráðherraembætti þar sem hann lá fárveikur á sjúkrabeði eftir hjartaðaðgerð. Inga þvertekur fyrir aðförina og segir þetta aðeins vera upplifun sjúklingsins. Reyndin varð sú að hann lét undan þrýstingi og vék af ráðherrastóli og seinna úr Flokki fólksins. Ljóst má vera að Inga á í nokkrum vandræðum með sannleikann gegn upplifuninni.
Inga er reyndar þekkt fyrir að vera hörð í horn að taka. Þannig henti hún sigursælum þingmanni sínum, Stuðmanninum Jakobi Frímanni Magnússyni, út eftir kjörtímabilið og hrakti hann yfir í Miðflokkinn ...





















Athugasemdir