Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

„Litla Lára hefði alveg mátt vita að hún mætti segja frá“

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Lára Garð­ars­dóttir Lára hlaut á dög­unum styrk úr Höf­unda­sjóði Mynd­stefs. Mynd: Aðsend

Kát Ína kan­ína — og leynd­ar­málið er ný barna­bók eftir Láru Garð­ars­dóttur fyrir börn á aldr­inum þriggja til sjö ára. Lára skrifar, mynd­skreytir og gefur bók­ina út sjálf og fjallar þar um mik­il­vægt en við­kvæmt efni: mun­inn á góðum og vondum leynd­ar­málum.

Sagan segir frá kan­ín­unni Ínu sem gengur með leynd­ar­mál sem verður sífellt þyngra að bera. Í gegnum sög­una er börnum á ein­faldan hátt bent á að það sé mik­il­vægt að segja frá ef leynd­ar­mál veldur van­líðan, ótta eða skömm.

Hvað varð til þess að þú skrifaðir bókina?

„Við þekkjum öll góð leynd­ar­mál,“ segir Lára í sam­tali við Mannlíf. „Að mamma sé ólétt, hvað ein­hver fær í jóla­gjöf eða hver er skot­inn í hverjum. Slík leynd­ar­mál geta verið skemmti­leg og skapað spennu, gleði og sam­kennd.“

En svo eru leynd­ar­mál sem eru allt ann­ars eðlis.

„Það eru leynd­ar­mál sem valda van­líðan, skömm eða ótta. Börn eru háð full­orðnum og geta átt sér­stak­lega erfitt með að segja frá þegar tryggðin við fólkið í kringum þau verður til þess að þau þegja.“

Lára segir að ein helsta ástæða þess að hún hafi viljað skrifa bók­ina hafi verið að kenna börnum að „svíkja ekki sig sjálf“.

„Ég vildi gefa þeim glugga til að greina á milli leynd­ar­mála og vanda­mála. Ég var sjálf barn með leynd­ar­mál og kannski skrifa ég þessa sögu að ein­hverju leyti fyrir litlu Láru – sem hefði alveg mátt vita að hún má og á að segja frá þegar henni líður illa.“

Vandað til verka

Lára segir mik­il­vægt hafa verið að fara var­lega með efnið, enda bókin ætluð mjög ungum börnum.

„Ég leit­aði meðal ann­ars til starfs­fólks Barna­húss, kenn­ara og heil­brigð­is­starfs­fólks við vinnslu bók­ar­innar. Mér fannst mik­il­vægt að nálg­ast þetta á réttan hátt.“

Mark­miðið hafi þó aldrei verið að skrifa þunga eða íþyngj­andi bók.

„Ég vildi skrifa sögu sem börn geta notið og sam­samað sig með, en sem getur líka gefið for­eldrum og öðrum full­orðnum tæki­færi til að opna á sam­tal.“

Sagan er í bundnu máli og bókin rík af mynd­máli, en Lára mynd­skreytir bók­ina sjálf og segir það hafa verið mik­il­vægan hluta af sköp­un­ar­ferl­inu.

Hefur opnað samtöl

Við­brögðin eftir að bókin kom út hafa verið Láru sér­stak­lega dýr­mæt.

„Börn hafa sjálf talað um að Ína hafi verið leið vegna leynd­ar­máls­ins og full­orðnir hafa sagt mér frá sam­tölum sem hafa skap­ast eftir lest­ur­inn.“

Þannig hafi bókin ekki aðeins snert börnin.

„Hún hefur ekki síður haft áhrif á og hreyft við full­orðna fólk­inu. Það er í raun nákvæm­lega það sem ég von­aði að bókin gæti gert.“

Lára seg­ist ekki gera ráð fyrir að ein barna­bók geti leyst erfið mál.

„En ef hún getur hjálpað einu barni að finna orð yfir eitt­hvað sem því líður illa með, eða orðið til­efni til sam­tals sem ann­ars hefði ekki átt sér stað, þá hefur hún gert það sem ég von­aði að hún gæti gert.“

Gefur bókina út sjálf

Lára hefur skrifað og mynd­skreytt barna­bækur um ára­bil og áður gefið út bók­ina Flökku­sögu, sem seld­ist upp.

Kát Ína kan­ína — og leynd­ar­málið hlaut styrk úr Höf­unda­sjóði Mynd­stefs en Lára sér sjálf um útgáfu bók­ar­innar og hún er nú komin í almenna dreif­ingu hjá Pennanum, Bókabúð For­lags­ins og A4, auk þess sem hægt er að kaupa hana á heima­síðu hennar.

Útgáfu­hóf verður haldið í Pennanum Eymunds­son í Kringl­unni 11. októ­ber klukkan 14. Allir eru vel­komnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu