Óljóst er hvort Guðbjörg Matthíasdóttir auðkona hyggst láta Harald Johannessen sitja einan sem ritstjóra Moggans. Eftir fráfall Davíðs Oddssonar hefur flogið fyrir að bæði Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson hafi markaðssett sig sem ritstjóra framtíðar. Hermt er að þeir hitti Einar Sigurðsson, krónprins Ísfélagsfjölskyldunnar og frumburð Guðbjargar, vikulega til skrafs og ráðagerða og væntanlega í von um dúsu. Tríóið hittist, að sögn, gjarnan á veitingastaðnum La Primavera þar sem plottað er inn í framtíðina.
Einar er stjórnarformaður Ísfélagsins með aðsetur í Reykjavík en gegnir ekki föstu starfi. Hann er áhugamaður um fjölmiðla og starfaði skamma hríð við að skrifa neytendafréttir í DV ...





















Athugasemdir