Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

„Ef hún er Breti, þá er ég brauðrist“

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga
Sagal Abdi-Wali með stuðn­ings­mönnum sínum Mynd: TOBY SHEPHEARD / AFP

Harðar deilur hafa brot­ist út í athuga­semda­kerfi RÚV á Facebook eftir að mið­ill­inn greindi frá stór­sigri Sagal Abdi Wali, fram­bjóð­anda Verka­manna­flokks­ins, í auka­kosn­ingum í Holborn og St. Pancras í Bret­landi.

Kosið var um þing­sæti Keirs Starmers, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og hlaut Abdi Wali 12.292 atkvæði. Zack Polanski, leið­togi Græn­ingja, varð annar með 8.928 atkvæði.

Abdi Wali kom til Bret­lands aðeins sex ára gömul sem flótta­maður frá Sómalíu ásamt for­eldrum sínum og fjórum bræðrum. Sigur hennar virð­ist hafa farið öfugt ofan í fjöl­marga Íslend­inga og logar athuga­semda­kerfi RÚV vegna máls­ins.

Nokkrir þeirra sem tjá sig telja kosn­inga­úr­slitin til marks um að Bretland sé að breyt­ast til hins verra. Ísleifur Jónsson segir Breta stefna í að verða minni­hluta í eigin landi en Birgir Birg­is­son lýsir úrslit­unum sem skelfi­legum og nefnir ótta við sharia lög.

Thor­valdur Skúlason tekur í sama streng og spáir því að Bretland verði áður en langt um líður komið undir sharia lög. Karl Egg­erts­son segir jafn­framt sorg­legt að fylgj­ast með „falli Bret­lands í raun­tíma“.

Bjarni Harð­ar­son dregur breskt þjóð­erni Abdi Wali í efa með beittum hætti.

„Ef hún er Breti, þá er ég brauðrist“ skrifar hann.

Fleiri lýsa miklum áhyggjum af áhrifum íslams í Bret­landi og einn segir landið hrein­lega vera tapað. Aðrir tengja nið­ur­stöð­una við inn­flytj­enda­mál og fjölgun múslima í bresku sam­fé­lagi.

Slæðan kemur kommentakerfinu á hliðina

Ekki eru þó allir til­búnir að taka undir dóms­dags­spárnar og fjöl­margir svara gagn­rýn­inni fullum hálsi.

Bjarn­heiður Jóhanns­dóttir telur slæðu Abdi Wali aug­ljós­lega hafa mikið að segja um við­brögðin.

„Bara af því að konan er með slæðu eru karlar uppá Íslandi að tapa sér. Ein ein­asta kona með slæðu og heim­ur­inn fer á hlið­ina.“

Tinna Krist­ins­dóttir gagn­rýnir sömu­leiðis talsmát­ann og spyr hvort það fari fyrir brjóstið á mönnum að múslímsk kona með annan bak­grunn en þeir sé að ná árangri.

Ómar Bjarki Krist­jáns­son segir við­brögðin bæði bjána­leg og óhugn­an­leg. Hann bendir á að Abdi Wali eigi að baki reynslu af opin­berri þjón­ustu í Bret­landi og að áherslu­mál hennar snú­ist meðal ann­ars um stöðu heim­il­is­lausra og tæki­færi fyrir ungt fólk.

Stóru orðin látin falla

Álfur Logi Guð­jóns­son gengur lengra í gagn­rýni sinni á athuga­semd­irnar og segir þær við­bjóðs­legar.

„Ekkert nema nas­istaó­geð að froðu­fella,“ skrifar hann.

Svavar Knútur tekur í svip­aðan streng og segir umræð­una ein­kenn­ast af bit­urð og hatri á brúnu fólki.

Fleiri virð­ast ein­fald­lega furða sig á því hvert umræðan er komin. Andrés Helgason skrifar: „Þetta kommenta kerfi. Úff.“

Ingi­björg Stef­áns­dóttir lætur hins vegar stóru orðin eiga sig og lýsir afstöðu sinni til nýkjörnu þing­kon­unnar með tveimur orðum: „Flott kona.“

Það er því óhætt að segja að kosn­inga­sigur Abdi Wali hafi hitt á við­kvæma taug í íslenska Facebookheiminum. Annars vegar má þar finna dóms­dags­spár um íslam, inn­flytj­endur og fram­tíð Bret­lands en hins vegar harða gagn­rýni á það sem aðrir telja vera lítt dulda útlend­inga­andúð og for­dóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina