Lögregluforinginn og Bolvíkingurinn Rögnvaldur Ólafsson vakti mikla athygli sem varamaður í þríeykinu fræga þar sem hann kom inn í stað kollega síns, Víðis Reynissonar.
Mikið hefur gengið á í lífi Rögnvaldar síðan hann var í því hlutverki að róa þjóðina á Covid-tímanum. Hann veiktist hastarlega og var nær dauða en lífi þegar hjálpin barst. Hann sagði sögu sína í þættinum Segðu mér hjá útvarpsdrottningunni Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur. Þar sagði Rögnvaldur frá þeirri lífsreynslu sinni að vera á mörkum lífs og dauða með ónýtt hjarta. Á elleftu stundu fékk hann nýtt hjarta og er nú óðum að ná styrk að nýju ...





















Athugasemdir