
80 mál umsáturseineltis eru í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og eru 54 einstaklingar með stöðu sakbornings í þeim málum en RÚV greinir frá þessu.
Í frétt RÚV er sagt að alls séu 12 einstaklingar grunaðir um fleiri en eitt brot en umsáturseinelti hefur verið mikið í umræðunni undanfarnar vikur eftir að Garpur Ingason Elísabetarson ásakaði Íris Hrund Jónatansdóttur um slíkt. Síðan hafa fleiri einstaklingar stigið fram og sagt svipaða sögu.
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir að umsáturseinelti komi oft upp í tengslum við sambandsslit og það sé mjög flókið fyrirbæri. „Þarna er aðili sem þekkir þig mjög vel, hefur átt við þig náið samband og þess vegna eru leiðirnar að þér svo margar og það þarf svo lítið til að ná inn í kjarnann.“
Þá megi ekki vanmeta þau áhrif sem umsáturseinelti getur haft á fólk. „Þetta brýtur niður kjarnann og það er til staðar ótti við bara að lifa sínu daglega lífi þannig að það þarf að taka þetta föstum tökum og senda skýr skilaboð um að við lítum á þetta sem mjög alvarlegt ofbeldi.“
Komment