MannlífiðLandsliðs- og markadrottning selur í Mosfellsbæ11. febrúar 2025 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, og Kristján Sigurðsson hafa ákveðið að selja heimili sitt í Mosfellsbænum. Berglind hefur á undanförnum áratug verið ein besta knattspyrnukona landsins og algjör markadrottning. Þá hefur hún spilað 72 landsleiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 12 mörk. Hún skipti nýlega úr Val yfir í Breiðablik eftir að forráðamenn Vals létu Berglindi vita...
HeimurRáðherra vill „sleppa helvíti lausu“ á Gaza – Halda skipulögðu niðurrifi áfram á Vesturbakkanum11. febrúar 2025 Ísraelskur ráðherra vill að helvíti „verði sleppt lausu“ á Gaza ef allir ísraelsku gíslarnir verði ekki leystir úr haldi fyrir laugardaginn. Samskiptaráðherra Ísraels er nýjasti háttsetti embættismaðurinn til að styðja ákall Trumps um að „sleppa helvíti lausu“ á Gaza ef ísraelskir fangar verða ekki látnir lausir fyrir laugardaginn. Hamas-liðar hafa frestað því að sleppa gíslum sínum þar sem þeir saka...
InnlentRíkið vekur athygli á hatursorðræðu: „Veldur sundrungu og skautun í samfélaginu“11. febrúar 2025 Mennta- og barnamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu kynna til leiks vefinn Saman gegn fordómum sem opnaði formlega fyrr í dag en greint er frá þessu í tilkynningu frá yfirvöldum. „Hlutverk vefsins er að fræða og vekja athygli á fordómum og hatursorðræðu í samfélaginu. Vefurinn býður upp á fjölbreytta fræðslu og verkfæri sem ætlað er að stuðla að aukinni vitund...
InnlentMikill meirihluti telur að Guðrún Hafsteinsdóttir verði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins11. febrúar 2025 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir hafa báðar tilkynnt um framboð sitt til formennsku í Sjálfstæðisflokknum en kosið verður um slíkt á landsfundi flokksins sem hefst í lok febrúar. Framanundan er spennandi kosningabarátta innan flokksins og ljóst er að mikil átök eru væntanleg meðal Sjálfstæðismanna. En við spurðum lesendur Mannlífs: Hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins? Niðurstaðan var nokkuð afgerandi hjá...
InnlentBirkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið11. febrúar 2025 Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins er engin annar en metalhausinn, veganinn, feministinn, samgönguhjólarinn og faðirinn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhugamaður um rokktónlist og segir hann í viðtalinu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörðinni í gegnum hina ýmsu öldudali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
InnlentSegir formannsslaginn einkennast af frasaflóði: „Ekkert stuð, engin stemning en fullt af átökum“11. febrúar 2025 Atli Þór Fanndal tætir formannsbaráttu Sjálfstæðisflokksins í sig og segir flokkinn í „miklu rusli“. Fyrrverandi framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International, Atli Þór Fanndal skrifaði færslu á Facebook í gær þar sem hann tekur fyrir formannsbaráttu Sjálfstæðisflokksins. Segir hann innihaldið hafa vikið fyrir „frasaflóði“. „Það er svolítið skemmtilegt merki um hvað staða Sjálfstæðisflokksins er vond og atgervisflóttinn rosalegur að þrír aðilar hafa...
InnlentForeldrar Bryndísar Klöru lýsa ódæðinu – Forráðamenn hnífamannsins földu vopnið og hylmdu yfir11. febrúar 2025 „Það er vitað hver hann var og það kemur víst í ljós að forráðamenn hans heima bregðast þannig við að þau fóru að reyna að bjarga honum. Út frá kannski sinni umhyggju fyrir honum. Reyna að milda afleiðingarnar fyrir hann. Það tafði rannsóknina eitthvað,“ segir Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru sem var stungin til bana á menningarnótt árið 2024....
SlúðurSigurður sagður ljúga11. febrúar 2025 Jóhann Páll Jóhannsson, orkumálaráðherra Samfylkingar, átti stórleik í ræðustól Alþingis undir stefnuræðu forsætisráðherra. Hann hjó á báðar hendur og skammaði stjórnarandstöðuna. Verstu útreiðina fékk Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sem sagði ranglega í sinni ræðu að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefði í engu nefnt kennara í sinni ræðu. „Og reyndar beit hann höfuðið af skömminni með því að ljúga því blákalt...
InnlentDrukkin kona hafnaði á staur11. febrúar 2025 Umferðarslys varð í austurborginni þegar kona missti stjórn á bifreið sinni og ók á ljósastaur. Engin meiðsli urðu á fólki. Við skoðun kom í ljós að ökumaður var undir áhrifum áfengis. Konan var vistuð í fangageymslu Tilkynnt um mann óvelkomin í annarlegu ástandi í húsi í Háleitishverfi. Honum var vísað út. Annar maður í annarlegu ástandi handtekinn í austurborginni fyrir...
MannlífiðBryti fór í mál við Skarphéðinn eftir nefbrot: „Ekki hægt að hafa slíkt starfsfólk“10. febrúar 2025 Nemandi í Reykjanesskóla við Ísafjarðardjúp rétti matreiðslumeistara skólans kjaftshögg og nefbraut hann árið 1989 en fjallað var um málið í DV og Bæjarins Besta. DV greindi fyrst frá atvikinu en nemandinn var ekki rekinn eftir höggið en sækja þurfti brytann með skipi og koma honum undir læknishendur á Ísafirði. Honum var síðar sagt upp en það var Skarphéðinn Ólafsson skólastjóri...
HeimurFyrrverandi útvarpsmaður BBC 1 fannst látinn í ánni Dart – Var dæmdur fyrir að eiga barnaníðsefni10. febrúar 2025 Fyrrverandi útvarpsmaður BBC Radio 1, Michael Willis, er látinn, 79 ára að aldri. Tilkynnt var um hvarf hans í desember en mánuði síðar fannst lík hans í ánni Dart. Michael Willis, sem einnig hafði starfað sem háskólakennari, hafði breytt nafni sínu í David Evans eftir að hafa verið leystur úr fangelsi eftir 18 mánaða dóm. Lögreglan sagði að hann hefði...
InnlentBorgin vill rannsaka ruslflokkun íbúa Reykjavíkur10. febrúar 2025 Reykjavíkurborg, í samstarfi við Háskóla Íslands, óskar eftir þátttöku í spurningakönnun sem er hluti af rannsókn sem snýr að venjum og hindrunum íbúa höfuðborgarsvæðisins í samgöngum og flokkun úrgangs segir í tilkynningu frá borginni. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu styrktarverkefni sem ber heitið „Tilraunaborgir; Þrætt í gegnum þrengsli,“ og miðar verkefnið að því að finna leiðir til að draga úr...
MenningSungu afmælissönginn baksviðs á Söngvakeppninni: „MotherFokkin Gunna Dís orðin 45 ára“10. febrúar 2025 Gunna Dís átti frábæra helgi sem byrjaði í raun á afmæli hennar á fimmtudagsmorguninn en þessi þjóðargersemi varð þá 45 ára. Guðrún Dís Emilsdóttir eða Gunna Dís eins og hún er alltaf kölluð, þótti bera af í þokka þar sem hún kynnti fyrstu fimm lögin í Söngvakeppni sjónvarpsins á laugardagskvöld, ásamt Hraðfréttamönnunum Benedikt og Fannari. Fyrir helgina fagnaði hún 45...
InnlentÞóra segir menn eins og Andersson og Breivik vera faraldra á Vesturlöndum: „Meðalið er banvænt“10. febrúar 2025 „Þegar óttinn við útlendinga er orðinn svo megn í Svíþjóð að stór hluti þjóðarinnar styður hægri-öfgamenn í Svíþjóðardemókrötum, ryðst hvítur einmana úlfur, út úr ósköp venjulegri blokkaríbúð, inn í skóla fyrir fullorðinsfræðslu, vopnaður hálfsjálfvirkum riffli og fleiri skotvopnum og fremur versta fjöldamorð í sögu Svíþjóðar.“ Þannig hefst Facebook-færsla Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur, upplýsingafulltrúa hjá Íslenskri erfðagreiningu og fyrrverandi fréttakonu á RÚV....
MenningÓðinn Jóns: „Nú er tækifæri, hugsar Einar, en gleymir kannski að aðrir gætu haft aðrar hugmyndir“10. febrúar 2025 Óðinn Jónsson segir það ekki koma á óvart að Einar Þorsteinsson „langi aftur heim til sjallanna“. Fyrrverandi fréttastjóri RÚV, Óðinn Jónsson, skrifaði í gær Facebook-færslu þar sem hann hálf partinn eignar sér árangur Einars Þorsteinssonar í borgarpólitíkinni. „Stundum hef ég hugsað með sjálfum mér og jafnvel upphátt að Einar Þorsteinsson hefði i mesta lagi orðið bæjarstjóri sjálfstæðismanna í Kópavogi en...
InnlentGengi Sýnar ekki verra í mörg ár – Herdís sögð vera á hættusvæði10. febrúar 2025 Gengi hlutabréfa í Sýn hefur ekki verið lægra síðan sumarið 2020 eftir að gengi þess tók dýfu í kjölfar afkomuviðvörunar sem fyrirtækið sendi frá sér á föstudaginn. Gengi félagsins er í dag 24,6 krónur og er það tæplega 50% lægra en fyrir ári síðan. Ljóst er að starf Herdís Drafnar Fjeldsted forstjóra er í mikilli hættu en hún tók við...