Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns

Bryti fór í mál við Skarphéðinn eftir nefbrot: „Ekki hægt að hafa slíkt starfsfólk“

Héraðsskólinn í Reykjanesi
Hér­aðs­skól­inn í Reykja­nesi

Nemandi í Reykja­nes­skóla við Ísa­fjarð­ar­djúp rétti mat­reiðslu­meist­ara skól­ans kjafts­högg og nef­braut hann árið 1989 en fjallað var um málið í DV og Bæjarins Besta.

DV greindi fyrst frá atvik­inu en nem­and­inn var ekki rek­inn eftir höggið en sækja þurfti bryt­ann með skipi og koma honum undir lækn­is­hendur á Ísafirði. Honum var síðar sagt upp en það var Skarp­héð­inn Ólafsson skóla­stjóri sem gerði það.

„Það er sannað að bryt­inn lagði hendur á nem­endur oftar en einu sinni og eitt sinn fékk hann nem­enda til að berja frá sér og þegar sá nem­andi losn­aði þá nef­braut hann kokk­inn. Brytinn er sá eini sem hefur lagt hendur á nem­endur og þegar þannig er þá tel ég ekki hægt að hafa slíkt starfs­fólk,“ sagði Skarp­héð­inn við Bæjarins Besta. Heiðar Guð­brands­son var umræddur bryti og hann var allt annað en sáttur með ummæli Skarp­héð­ins og fór í meið­yrða­mál við hann.

Neitaði öllu

„Því er haldið fram af nem­endum að ég hafi valdið meiðslum á einum þeirra,“ sagði Heiðar við Bæjarins Besta. „Ég neita að hafa valdið þessum meiðslum og hef grun um að þau hafi komið til áður en til þess kom að ég fjar­lægði nem­and­ann úr borð­salnum dag einn í vor. Skóla­stjór­inn gerði engar athuga­semdir við það mál þá. Ég fór fram á rann­sókn á til­drögum þess atburðar og afleið­ingum en því var hafnað. Ástandið hér í vetur hefur verið þannig að hér er engum aga haldið uppi og raunin er sú að börnin stjórna skól­anum. Þetta hef ég bent skóla­stjóra á en án árang­urs. Hér komu menn frá ráðu­neyt­inu til að kanna ástandið og skóla­stjór­anum bár­ust athuga­semdir frá ráð­herra eftir það en ekk­ert breytt­ist. Þá hefur skóla­stjóri einnig haft ýmis­legt við það að athuga að ég tók við bók­haldi mötu­neyt­is­ins að beiðni skóla­nefndar fljót­lega eftir að ég hóf störf. Þetta er alveg lýsandi fyrir sam­skipti skóla­stjór­ans við starfs­fólk hér en engu að síður hyggst ég sækja um aftur í haust,“ sagði Heiðar.

Heiðar vann málið í und­ir­rétti en Skarp­héð­inn áfrýj­aði mál­inu til Hæsta­réttar og var sýkn­aður af öllum kröfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára

Heimur

Stærsta rann­sókn sinnar teg­undar sýnir að eft­ir­sjá vegna kyn­leið­rétt­ingar er afar sjald­gæf

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Sport

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Fólk

Glæsi­hýsi til sölu þar sem sláttu­vélin þarf að kom­ast upp á þak

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni