InnlentGlerhús Sjálfstæðisflokksins mölbrotnar – Þáði 167 milljónir rangt skráður27. janúar 2025 Það hefur stundum verið sagt að fólk eigi ekki að kasta grjóti úr glerhúsi en það virðist vera tilfellið þegar kemur að Sjálfstæðisflokknum ef marka má frétt Vísis um flokkinn í dag. Það er greint frá því að flokkurinn hafi þegið 167 milljónir króna þrátt fyrir að hann hafi verið skráður sem félagasamtök en ekki sem stjórnmálaflokkur en skráningu hans...
InnlentTafir urðu á Reykjavíkurflugvelli þegar kennsluflugvél hlekktist á í lendingu27. janúar 2025 Óhapp varð þegar kennsluflugvél kom inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli. Var önnur flugbrautin lokuð á meðan rannsókn stóð yfir. Samkvæmt RÚV hlekktist kennsluflugvél á í lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag. Engin meiðsl urðu á fólki en nokkrar tafir urðu á flugi um flugvöllinn á meðan rannsóknarnefnd samgönguslysa kannaði vettvanginn. Af þeim sökum var önnur flugbrautin lokuð á meðan. Búið er...
HeimurSæstrengur sem tengir Lettland og Svíþjóð skemmdur í gær – Skip kyrrsett grunað um verknaðinn27. janúar 2025 Í gærmorgun skemmdist sæstrengur sem tilheyrir Lettneska ríkisútvarps- og sjónvarpsmiðstöðinni (LVRTC) í Eystrasalti, að því er stöðin greindi frá. Truflanir mældust á Ventspils–Gotland-kafla strengsins sem tengir Lettland og Svíþjóð saman. Eftir fyrstu rannsókn komst LVRTC að þeirri niðurstöðu að „verulegt tjón“ væri af völdum utanaðkomandi þátta. Fjölmiðillinn benti á að strengurinn liggi á meira en 50 metra dýpi og nákvæmt...
LandiðKarlmaður ákærður fyrir að birta nektarmyndir af barnsmóður sinni á Facebook27. janúar 2025 Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir stórfelldar ærumeiðingar og kynferðisbrot gagnvart barnsmóður sinni en maðurinn deildi nektarmyndum af henni á samfélagsmiðlinum Facebook og Snapchat ásamt niðurlægjandi texta en mbl.is greindi frá málinu. Maðurinn er sagður hafa birt fimm myndir af fyrrverandi sambýliskonu sinni nakinni en krotaði fyrir brjóst og kynfæri hennar. Þá er hann sagður hafa hótað að birta myndirnar á...
InnlentBjörn Leví rýnir í nýnasistakveðju Elon Musk: „Af hverju neitar hann að segja það bara beint út?“27. janúar 2025 Björn Leví Gunnarsson segir greinilegt að kveðja Elon Musk hafi verið nýnasistakveðja og færir fyrir því rök í nýrri Facebook-færslu. „Það er nefnilega nauðsynlegt að kalla hlutina réttu nöfnunum. Þetta er fasista/nasistakveðja. Það sem ef ekkert hægt að fullyrða um er hvort þetta var meint sem slík kveðja.“ Þannig hefst Facebook-færsla fyrrverandi þingmanns Pírata, Björns Levís Gunnarssonar. Í færslunni færir...
HeimurTrump vill að nágrannaþjóðir taki við Gaza-búum: „Brjálæði að Bandaríkjaforseti sé að segja þetta“27. janúar 2025 Donald Trump á yfir höfði sér fordæmingu um allan heim eftir að hafa stungið upp á „þjóðernishreinsanir“ á Gaza. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur verið sakaður um að hafa lagt til „þjóðernishreinsanir“ á Gaza eftir að hafa sagt „við getum bara hreinsað út allt saman“ með tvær milljónir á flótta. Bandaríkjaforseti lýsti stríðshrjáðu landsvæðinu sem „niðurrifssvæði“ og lagði til að...
MenningÓskarsverðlaun klámmyndaleikara afhent – Isiah Maxwell og Vanna Bardot unnu stórt27. janúar 2025 Eins og í mörgum stórum starfsgreinum veitir klámmyndaiðnaðurinn fólki verðlaun sem er í þeim bransa. Þekktustu verðlaun þess iðnaðar eru án efa AVN verðlaunin eftirsóttu en þau eru stundum kölluð Óskarsverðlaun klámmyndaleikara og þau voru afhent um síðustu helgi í Las Vegas en þau hafa verið veitt síðan árið 1984. Isiah Maxwell og Vanna Bardot munu seint gleyma deginum en...
InnlentLögreglan svarar engu um vafasamar auglýsingar Minigarðsins27. janúar 2025 Eins og Mannlíf greindi frá brá mörgum gestum Minigarðsins þegar þeir mættu á veitingastaðinn til að horfa á leik Íslands við Grænhöfðaeyjar í fyrsta leik liðsins á HM í handbolta en staðurinn var skreyttur frá toppi til táar með auglýsingum fyrir erlent veðmálafyrirtæki. Rétt er að taka fram að samkvæmt stjórnarráðinu hefur fyrirtækið ekki leyfi til að starfa á Íslandi...
InnlentMótmæli Sólveigar sögð efla veitingastaðinn Finnsson – Stóraukin aðsókn og sumir koma oft í viku27. janúar 2025 Fullyrt er að aðsókn á veitingastaðinn Finnson Bistro í Kringlunni hafi stóraukist eftir að stéttarfélagið Efling hóf að mótmæla við staðinn og vara viðskiptavini við að skipta við staðinn. Mótmælin snúast um það að Óskar Finnson veitingamaður og hans fólk er eitt þeirra fyrirtækja sem samþykkir tilverurétt verkalýðsfélagsins Virðingar og býður sínu starfsfólki að starfa undir samþykki þess félags og...
SlúðurDrottningarviðtal við Gulla27. janúar 2025 Einhverjir biðu þess spenntir að heyra á Sprengisandi á Bylgjunni um ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns varðandi formannsframboð í Sjálfstæðisflokknum. Í kynningu á komu Guðlaugs í þáttinn var gefið í skyn að nú yrði ákvörðun hans opinberuð. Viðtalið reyndis vera hið besta drottingarviðtal þar sem Gulli og Kristján Kristjánsson spyrill fóru um víðan völl og greindu stöðu Sjálfstæðisflokksins í frumeindir....
InnlentDólgur sparkaði í lögreglumann27. janúar 2025 Þrír drykkjuboltar voru með leiðindi við farþega í strætisvagni. Lögreglan mætti og skipaði þeim að yfirgefa vagninn og finna sér annan ferðamáta. Þeir hlýddu fyrirmælunum. Drukkinn einstaklingur var til vandræða á öldurhúsi í miðborginni. Sá ölvaði fékk skýr fyrirmæli um að yfirgefa staðinn en neitaði að verða við því. Hann sparkaði að lokum í lögreglumann. Dólgurinn var handtekinn og fluttur...
InnlentLeðurblakan flaug á brott26. janúar 2025 Innbrot var framið í fyrirtæki í austurborginni. Málið er í rannsókn. Bifreið var ekið á steyptan stólpa og umferðarskilti í miðborginni. Talið er að ökumaður bifreiðarinnar hafi ekki verið með fullu ráði. Hann var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá á hann einnig yfir höfði sér sektir fyrir að haga ökuhraða sínum ekki miðað við aðstæður...
InnlentReynir Grétarsson er einn aðaleigenda Sýnar: „Ég hef áhyggjur ef ég heyri að fólk sé að hætta“26. janúar 2025 „Ég hef áhyggjur ef ég heyri að fólk sé að hætta í fyrirtækinu og að fólki líði ekki vel af einhverjum ástæðum. Það er aldrei gott,“ segir Reynir Grétarsson, einn aðaleigenda fjölmiðlarisams Sýnar, í samtali við Morgunblaðið. Mikil ólga er innan fyrirtækisins og fjöldi lykilstarfsmanna er hættur störfum. Fyrirtækið hefur ekk traust fjárfesta og er lágt metið á markaði. Reynir...
InnlentÁslaug Arna býður sig fram til formanns: „Tækifærið er núna“26. janúar 2025 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tilkynnt um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins en kosið verður um nýjan formann á landsfundi flokksins sem hefst í lok febrúar á þessu ári. „Við Sjálfstæðismenn og raunar þjóðin öll, megum engan tíma missa. Á meðan núverandi stjórn er við völd, á meðan borgin er rekin á yfirdrætti, þegar flokkurinn þarf mest á því...
InnlentHelmingur telur að RÚV eigi að vísa VÆB úr Söngvakeppninni26. janúar 2025 Hljómsveitin VÆB sem tekur þátt í Söngvakeppninni 2025 hefur verið sakað um að stela hluta úr öðru lagi og nota sem eigið lag en um er ræða vinsælt lag frá Ísrael. Málið er til skoðunnar hjá RÚV en sumir telja að vísa eigi hljómsveitinni úr keppni og hafa höfundar ísraelska lagsins haft samband við lögfræðinga vegna málsins. En við spurðum...
InnlentNeyðarsöfnun fyrir íbúa Gaza26. janúar 2025 Rauði krossinn á Íslandi hefur nú hafið neyðarsöfnun fyrir íbúa Gaza. Í tilkynningu frá Rauða krossinum á Íslandi segir að yfir 1,9 milljónir Palestínufólks séu nú á vergangi á Gaza, nú þegar vopnahlé er komið á. Þá segir einnig að 92 prósent íbúðarhúsnæðis hefur orðið fyrir skemmdum. Hér má lesa tilkynningu Rauða krossins í heild sinni: Vopnahlé er komið á...