InnlentInga Sæland lætur „falsfjölmiðla“ heyra það: „Koma fram við fólk eins og fífl“22. janúar 2025 Inga Sæland lætur Morgunblaðið heyra það í Facebook-færslu sem hún birti í kvöld. „Ég vil senda ykkur öllum hjartans þakkir fyrir að standa vaktina með okkur þegar þeir sem tapað hafa völdum eyða allri sinni orku í að sverta Flokk fólksins sem mest þeir mega. Alþingi ekki einu sinni komið saman hvað þá að þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafi komið fram.“ Þannig...
InnlentFriðrik segir söguna vera að endurtaka sig: „Ekki segja mér að hafa ekki áhyggjur“22. janúar 2025 Friðrik Agni Árnason segist vera sorgmæddur yfir þróuninni í heiminum hvað varðar kynþáttahatur en hann á móður sem er indversk. „Ég veit ekki af hverju, en ég er bara svoldið sorgmæddur. Um jólin og nú í byrjun árs hef ég verið að lesa mikið í mannkynssögu,“ skrifar Friðrik Agni Árnason, dansþjálfari, skáld og taugatúlkunarþjálfari í færslu sem hann birti á...
LandiðVestfirðir fá mest af byggðarkvótanum – Suðurland rekur lestina22. janúar 2025 Almennum byggðakvóta hefur verið úthlutað til 42 byggðarlaga í 25 sveitarfélögum á fiskveiðiárinu 2024-2025 en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnarráðinu. „Atvinnuvegaráðherra er heimilt að ráðstafa aflamagni í óslægðum botnfiski til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og mæta áföllum sem fyrirsjáanleg eru vegna verulegra breytinga á aflamarki einstaka tegunda. Heildarráðstöfun byggðakvóta...
InnlentBjörn Þorláksson yfirgefur Flokk fólksins: „Ég biðst afsökunar sem fráfarandi varaþingmaður“22. janúar 2025 Björn Þorláksson hefur sagt sig úr Flokki fólksins. Blaðamaðurinn, rithöfundurinn og fyrrum varaþingmaðurinn Björn Þorláksson hefur tekið þá ákvörðun að velja blaðamennsku ofar stjórnmálunum og því sagt sig úr Flokki fólksins. „Blaðamennskan öðru ofar – Úrsögn úr Flokki fólksins Helsta ástríða mín hefur alltaf verið að þjóna almenningi með beittri blaðamennsku. Enda hef ég fengið tækifæri til þess í marga...
MenningLagið Heim til vina slær í gegn: „Er að vona að ég verði svona one hit wonder“22. janúar 2025 Reinhold Richter gaf út lagið Heim til vina á dögunum en það samdi hann til heiðurs vinar síns, Ísaks Harðarsonar ljóðskálds, sem lést árið 2023. Segist hann í samtali við Mannlíf vona að lagið verði „one hit wonder“ eða einsmellungur eins og það kallast á íslensku. Aðspurður um viðbrögðin við laginu segir Reinhold þau hafa verið frábær: „Ég fæ alveg...
HeimurSlagsmál milli starfsmanna og viðskiptavina brutust út á McDonald’s í Amsterdam – MYNDBAND22. janúar 2025 Það eru greinilega ekki allir sem „elska það.“ Ótrúleg slagsmál áttu sér stað á McDonald’s í Amsterdam í gær en samkvæmt fjölmiðlum í Hollandi brutust þau út eftir að einn viðskiptavinur fékk vitlausa pöntun. Viðskiptavinurinn stökk á starfsmanninn sem afgreiddi hana og kastaði drykk í starfsfólkið í eldhúsinu. Það féll ekki í kramið hjá starfsfólkinu sem svaraði fyrir sig með...
InnlentBróðir Kolbrúnar látinn fjúka frá Sýn – Starfsmenn sagðir óttast atvinnumissi22. janúar 2025 Steini Kára Ragnarssyni og Ingva Steinari Ólafssyni, viðskiptastjórum hjá Sýn, hefur verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu en DV greindi frá uppsögn Steins fyrr í dag og einnig að öðrum viðskiptastjóra hafi verið sagt upp. Heimildir Mannlífs herma að sá maður sé Ingvi Steinar Ólafsson en hann vildi ekki tjá sig við Mannlíf þegar hann var spurður út í málið....
MenningHalla fann áratuga gamalt hitarúllusett og er hæstánægð með krullurnar – SJÁ MYNDIR22. janúar 2025 Halla Hrund Logadóttir byrjar árið vel en í gær keypti hún áratuga gamalt glæsilegt hitarúllusett og er ekkert lítið sátt við útkomuna. Halla Hrund Logadóttir kom eins og stormsveipur inn í forsetakosningarnar í fyrra en hún vakti gríðarlega athygli fyrir skarpskyggni, þokka og almenn vingjarnlegheit. Ekki tókst henni þó að komast á Bessastaði en flaug inn á þing fyrir Framsóknarflokkinn...
HeimurFinna aðeins bein og óþekkjanleg lík undir rústunum á Gaza – Myndband sýnir gjöreyðilegginguna22. janúar 2025 Almannavarnateymi á Gaza reyna nú að fara í gegnum eins margar húsarústir á sem flestum svæðum þar sem fólk er enn saknað en finna að mestu aðeins bein. Í gær sögðust þeir hafa náð líkum 68 Palestínumanna. Enn eru að minnsta kosti 11.000 fleiri ófundnir og taldir vera fastir undir rústunum. Neyðarsveitir hafa ekki fullnægjandi þungabúnað sem þarf til að...
HeimurÖkumaður óvart skotinn af lögreglumanni með eigin byssu – MYNDBAND22. janúar 2025 Jason Arrington var skotinn með eigin byssu eftir að hafa ekið yfir gatnamót á rauða ljósi. Forsaga málsins er að Arrington var stöðvaður af lögreglumönnum í Flórída fyrir að keyra yfir á rauðu ljósi í desember. Þegar annar lögreglumaðurinn var að biðja Arrington um öll gögn sem hann þurfti til að skrifa sektina spurði hann einnig hvort Arrington væri vopnaður...
InnlentUgla uggandi yfir Trump: „Ógnar bókstaflega lýðræðinu og heimsöryggi eins og það leggur sig“22. janúar 2025 „Það sem er auðvitað mest ógnvekjandi við vígslu Trump til forseta er ekki bara það að hann ætli sér að taka öll lagaleg réttindi af trans fólki og helst þurrka þau út í lagalegum skilningi — heldur er það sú staðreynd að það er fólk sem kaus hann til valda, vitandi að hann stendur á móti öllu sem tengist jafnrétti...
InnlentFlestir vilja senda Stebba Jak í Eurovision22. janúar 2025 Nú er búið að kynna alla þá flytjendur sem taka þátt í Söngvakeppninni 2025 og mun siguratriðið taka þátt í Eurovision fyrir hönd Íslands í Sviss í maí. Mörg góð lög eru í boði eins og venjan er og verður erfitt fyrir þjóðina að gera upp hug sinn. En við spurðum lesendur Mannlífs: Hvaða atriði vilt þú senda í Eurovision...
InnlentHrafnhildur Guðfinna er látin22. janúar 2025 Hrafnhildur Guðfinna Thoroddsen lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 16. janúar síðastliðinn. Hún var 51 árs. Fram kemur í frétt mbl.is að Hrafnhildur fæddist 18. apríl 1973 í Reykjavík en foreldrar hennar eru Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, fædd 1948 og Ólafur E. Thoroddsen hæstaréttarlögmaður, fæddur 1945, dáinn 2023 en þau skildu. Hefbundinni skólagöngu lauk Hrafnhildur frá Grunnskólanum á Seltjarnarnesi og stúdentsprófi...
SlúðurJón vill ekki Þórdísi22. janúar 2025 Jón Gunnarsson alþingismaður vill ekki Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem næsta formann Sjálfstæðisflokksins. Þetta mátti lesa út úr orðum hans á Samstöðinni þar sem hann fór yfir stöðu mála í flokknum. Hann sakar Þórdísi um undirmál og virðingarleysi aðdragnada kosninganna þegar hún flúði Norðvesturkjördæmi og settist í annað sætið í Kraganum. Þórdís Kolbrún er í mótvindi. Hún þykir hafa misst...
InnlentHart sótt að Ingu Sæland vegna ólöglegra flokksstyrkja: „Síðasta fíflið er ekki fætt hér á landi“22. janúar 2025 „Ekki ætlar fjórða valdið, fjölmiðlar þessa lands, að láta hana komast upp með það að segja að þetta hafi bara verið mistök þar sem liðin eru átta ár síðan það átti að skrá Flokk fólksins sem stjórnmálasamtök?“ skrifar Davíð Bergmann í aðsendri grein á Vísi þar sem hann fordæmir framgöngu Ingu Sæland og stjórntök hennar á Flokki fólksins sem hefur...
InnlentÖlvaður ökumaður og búðarþjófar22. janúar 2025 Róleg nótt að baki hjá lögreglu. Helstu mál snerust um ökumenn sem fylgdu ekki reglum og lögum. Eldur kom upp í gámi í austurborginni. Minniháttar skemmdi. Grunur um íkveikju en gerandi ókunnur. Meintur ólöglegur innflytjandi var handtekinn í miðborginni. Mál hans er í rannsókn. Búðarþjófur var við gripdeildir í verslun í austurborginni. Mál hans var afgreitt á vettvangi. Ökumaður var...