Halla Hrund Logadóttir byrjar árið vel en í gær keypti hún áratuga gamalt glæsilegt hitarúllusett og er ekkert lítið sátt við útkomuna.
Halla Hrund Logadóttir kom eins og stormsveipur inn í forsetakosningarnar í fyrra en hún vakti gríðarlega athygli fyrir skarpskyggni, þokka og almenn vingjarnlegheit. Ekki tókst henni þó að komast á Bessastaði en flaug inn á þing fyrir Framsóknarflokkinn í nýliðnum Alþingiskosningum.
Í morgun birti Halla Hrund skemmtilega Facebook-færslu þar sem hún segir frá óvenjulegum kaupum en í gær fann hún General Electric hitarúllusett sem framleitt var fyrir mörgum áratugum síðan. Og hún prófaði rúllusettið strax í gærkvöldi og er ekki ósátt með niðurstöðuna. Hér má lesa færslu hennar og sjá afraksturinn:
„Ég heimsótti hina frábæru Bókabúð Gulla á Sólheimum í gær. Hún er engri lík. Þar rakst ég á þetta forláta hitarúllusett frá General Electric – sennilega framleitt á árunum 1960-1970. Prófaði það í gærkvöldi og hér má sjá afraksturinn. Ég segi bara; Dyson hvað!? Þess má geta að sparnaður við val á þessari rúmlega 50 ára græju umfram Dysoninn var jú umtalsverður… Þetta ár fer vel af stað!“

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir