Vestfirskur karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur af Héraðsdómi Vestfjarða fyrir að hrækja á lögreglumann.
Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 17. júní 2023, á tjaldsvæði við Hlíðarfjallsveg á Akureyri, hrækt á lögreglumann sem var þar við skyldustörf, með þeim afleiðingum að hrákinn lenti á vinstri vanga og fatnaði lögreglumannsins.
Vestfirðingurinn mætti ekki í réttarhöldin og var fundinn sekur en háttsemi hans náðist að hluta til á búkmyndavélum lögreglumanna. Samkvæmt sakavottorði á maðurinn nokkurn sakaferil að baki.
Hann var á endanum dæmdur í 60 daga óskilorðsbundið fangelsi.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment