
Slökkvilið að störfumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur
Það voru 104 sjúkraflutningar á síðasta sólarhring en þetta kemur fram í tilkynningu frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og var álagið því töluvert.
Dælubílar sinntu fjórum útköllum, þar af einu í gærkvöldi um hálf tólf þegar tilkynning barst um bíl alelda við Árbæjarkirkju. Eldurinn náði að valda talsverðu tjóni á nærliggjandi bíl áður en slökkviliðið náði að slökkva hann.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment