1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Fékk aldrei lyklana en þarf samt að greiða hundruð þúsunda

7
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

8
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

9
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

10
Innlent

Tók lögregluna upp í laumi og kvartaði svo yfir framkomunni

Til baka

Ein frægasta einræða Ástralíu komin á hljóðminjasafn

„Taktu hönd þína af limi mínum!“

Karlson
Jack KarlsonKarlson lést árið 2024, 82 ára að aldri
Mynd: YouTube-skjáskot

Fræg ræða Jack Karlson, þar sem hann hrópar meðal annars „democracy manifest“ eða „birtingamynd lýðræðis,“ eins og það gæti útlagst á íslensku, hefur nú verið tekin inn í þjóðarsafn hljóðupptaka eða hljóðminjasafn í Ástralíu sem varðveitir efni með sögulegt, menningarlegt og fagurfræðilegt gildi.

Fyrir 35 árum, þegar Karlson var handtekinn fyrir utan kínverskan veitingastað í Queensland, gat hann vart gert sér í hugarlund að orð hans yrðu síðar séð af milljónum manna, yrðu að netfyrirbæri og nú varðveitt í National Film and Sound Archive (NFSA).

Í upptökunni heyrist Karlson segja:

„Gentlemen, this is democracy manifest! … What is the charge? Eating a meal? A succulent Chinese meal?“

Ræðan er ein af níu hljóðupptökum sem bætt hefur verið við „Sounds of Australia“-safnið í ár, en þar eru einnig meðal annars hljóð frá gangbrautarmerki og lagið Scar eftir Missy Higgins frá 2004.

Safn sem endurspeglar þjóðina

„Sounds of Australia“ var stofnað fyrir nærri tveimur áratugum og inniheldur hljóð sem endurspegla sögu, menningu og fagurfræði Ástralíu. Upptökur eru tilnefndar af almenningi og verða að vera að minnsta kosti tíu ára gamlar. Sérfræðingar NFSA velja síðan hvaða efni fær inngöngu í safnið ár hvert.

Karlson, sem var smáglæpamaður og notaði ýmis dulnefni, varð heimsþekktur á netinu þegar frétt frá 7NEWS frá árinu 1991 fór í dreifingu á YouTube. Í myndbandinu heyrist hann meðal annars hrópa: „Get your hand off my penis!“ eða „Taktu hönd þína af limi mínum!“ áður en hann hrósar lögreglumanni fyrir handtökutækni.

Fjölbreytt efni bætt við

Elsta upptakan sem bætt var við safnið í ár er danslagið You eftir Marcia Hines frá 1977, en sú nýjasta er þakkarræða Rosie Batty frá 2015 þegar hún var útnefnd Ástrali ársins. Hún tileinkaði ræðuna syni sínum, Luke, sem var myrtur af föður sínum.

Aðrar upptökur sem nú eru varðveittar eru meðal annars útvarpsútsending frá árinu 2007 um landréttindi frumbyggja, gangbrautarhljóð sem síðar var notað í laginu Bad Guy með Billie Eilish og grínlagið Shaddap You Face eftir Joe Dolce frá 1981.

Þá komst lagið Scar, sem náði toppsæti vinsældalista þegar það kom út, á safnið en það var nýlega kosið fjórða besta ástralska lagið í Hottest 100 lista Triple J árið 2025.

Endurspeglar fjölbreytileika þjóðarinnar

Að sögn Meagan Loader, aðalsýningastjóri safnsins, er markmiðið að safna efni sem höfðar til allra Ástrala.

„Við biðjum almenning um að tilnefna hljóð á hverju ári og fáum alltaf ótrúlega fjölbreytt efni,“ sagði hún. „Það eru svo margar mismunandi sjálfsmyndir og sjónarhorn sem felast í því að vera Ástrali og við reynum að endurspegla þann fjölbreytileika í safninu.“

Í dag eru meira en 300.000 hljóðupptökur varðveittar í safninu og er um þriðjungur þeirra talinn í hættu, en þær eru verndaðar með stafrænni varðveislu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Myndband náðist af ódæðinu
Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum
Heimur

Andrew Tate sagður hafa haft gróft klámefni með hesti og áli í fórum sínum

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Loka auglýsingu