
Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, fer hörðum orðum um svokallaða afneitunarsinna í nýrri Facebook-færslu sinni, þar sem hann beinir sjónum bæði að loftslagsmálum, covid-bólusetningum og Evrópusambandinu. Hann segir slíkt fólk meðal þess hættulegasta í samfélaginu og að það þurfi „að koma böndum á“ það.
Brynjar nefnir sérstaklega þá sem efast um að hækkun hitastigs jarðar af mannavöldum sé vísindaleg staðreynd og þá sem telja að „þvingaðar covid bólusetningar hafi verið meira til góðs en skaða.“ Hann bendir jafnframt á að afneitunarsinnar séu ekki nýtt fyrirbæri í sögunni og að þeir hafi „þurft að sæta ofsóknum og slaufunum í gegnum aldirnar,“ jafnvel þótt þeir hafi stundum haft rétt fyrir sér.
Í færslunni segir hann þó að einn hópur afneitunarsinna þurfi ekki að óttast slíkar ofsóknir. Þar eigi við þá sem neiti því „að ESB ríkin hafi lagt mikið á sig við að brjótast til fátæktar með skattahækkunum og íþyngjandi regluverki.“ Hann bætir við að sumir trúi jafnvel „að evran sé sterkur gjaldmiðill og að við fáum undanþágu frá regluverki ESB hvað varðar auðlindir okkar ef við sækjum um aðild.“
Brynjar fullyrðir að þetta fólk blási „á staðreyndir án þess að blikna“ og heldur áfram: „en flest þeirra ef ekki öll þjást af loftslagskvíða og hafa farið tíu sinnum í covid bólusetningar.“
Að lokum slær hann léttari tón og segir að hann sjálfur hafi ekki miklar áhyggjur af hvorki ESB, bólusetningum né loftslaginu. „Mestu áhyggjur mínar í augnablikinu eru að Landspítalinn hafi skipt út Smjörva fyrir ítalskt viðbit,“ skrifar Brynjar.

Komment