Leikarinn Crispin Glover, sem lék George McFly í kvikmyndinni Back to the Future, vísar alfarið á bug ásökunum um að hafa lokkað konu til að flytja til sín og beitt hana líkamlegu ofbeldi. Hann heldur því þvert á móti fram að hún hafi ráðist á sig.
Í myndbandi sem birt var opinberlega segir Glover að konan, sem kærir hann undir dulnefninu Jane Doe, hafi verið handtekin á heimili hans fyrir líkamsárás og setið í fangelsi eftir að hafa ráðist á hann. Að sögn leikarans óskaði hann eftir nálgunarbanni gegn henni, en ekki hafi tekist að birta henni stefnuna þar sem hún hafi horfið sporlaust eftir að henni var sleppt úr haldi.
Glover vildi ekki greina nánar frá því með hvaða hætti meint árás átti sér stað, þar sem málið er til meðferðar fyrir dómstólum. Heimildir innan lögreglu hafa áður staðfest að hann hafi tilkynnt að hann hefði orðið fyrir árás af hálfu konunnar.
Konan, sem sögð er fyrirsæta frá Bretlandi, hefur höfðað mál gegn Glover og heldur því fram að hann hafi blekkt hana til að flytja frá Evrópu til Bandaríkjanna með loforðum um að hún gæti búið á heimili hans í Silver Lake-hverfinu í Los Angeles og starfað sem aðstoðarmaður hans.
Samkvæmt kæru hennar hafi hún hins vegar komist að því við komuna til Los Angeles að gert hafi verið ráð fyrir að hún yrði sambýliskona hans og ynni án endurgjalds. Hún heldur því jafnframt fram að Glover hafi vísað henni úr húsnæðinu þegar hún fór út án leyfis hans og að hún sé nú heimilislaus af þeim sökum.
Talsmaður Glover hafnaði ásökununum í yfirlýsingu og sagði þær „algerlega tilefnislausar“. Þar kemur jafnframt fram að leikarinn hyggist verja sig af fullum þunga og leita allra tiltækra úrræða. Hann sé þess fullviss að réttarkerfið muni leiða í ljós að málsóknin sé haldlaus.


Komment