
Leikkonan Cynthia Erivo hefur nú stigið fram og tekið á orðrómi sem hefur verið á kreiki um að náin vinátta hennar og Ariana Grande hafi þróast yfir í rómantískt samband.
Cynthia, sem leikur Elphöbu Thropp í Wicked eftir leikstjórann Jon M. Chu, segir að fólk eigi oft erfitt með að skilja að tvær konur geti átt djúpt og náið samband án þess að um ást sé að ræða.
„Mér fannst í upphafi eins og fólk skildi ekki hvernig tvær konur gætu verið nánar vinkonur án þess að vera elskendur,“ sagði hún í viðtali við The Stylist. Hún bætti við að um hana og Ariönu hefði skapast sérstök forvitni þar sem margir töldu vináttuna annaðhvort sviðsetta eða rómantíska.
„Ég hef aldrei rætt þetta opinberlega áður, en það var einhvers konar undarleg heillun í kringum okkur tvær, þar sem fólk annaðhvort hélt að við værum að leika fyrir myndavélarnar eða að við værum elskendur.“
Cynthia telur þetta endurspegla hversu lítið sé rætt um platóníska vináttu kvenna sem sé bæði djúp og raunveruleg. Slík tengsl séu víða til staðar í samfélaginu, en sjaldan sýnd opinberlega eða á skjánum. Að hennar mati geti það valdið óþægindum þegar fólk sér náin tengsl sem passa ekki inn í hefðbundnar hugmyndir um sambönd.
Erivo, sem hefur verið sögð hafa átt í rómantísku sambandi við Lenu Waithe frá árinu 2022, og Ariana Grande vöktu mikla athygli í kynningarferðum Wicked-myndanna. Fjölmörg myndskeið af tilfinningaríkum augnablikum þeirra tveggja urðu fljótt umtöluð á netinu.
Eftir atvik á frumsýningu myndarinnar í Singapúr, þar sem Cynthia verndaði Ariönu þegar aðdáandi hljóp að henni, rifjaði hún upp hversu margt þær hefðu gengið í gegnum saman. Hún sagði samstarfið hafa verið krefjandi en jafnframt styrkjandi og að myndin hefði hjálpað þeim að vaxa, bæði sem listamönnum og manneskjum.
Þrátt fyrir áskoranir segist Cynthia afar þakklát fyrir vináttuna og samstarfið við Ariönu. Hún telur að áhrif myndarinnar nái langt út fyrir kvikmyndatjaldið, þar sem margir áhorfendur sjái sjálfa sig í persónum hennar og upplifi aukið öryggi.
Að hennar mati er það einmitt kjarninn í listinni, að skapa verk sem gefa fólki tilfinningu fyrir tengingu og skilningi, og hún segist þakklát fyrir að hafa fengið að upplifa það ferðalag við hlið Ariönu Grande.

Komment