
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölmörgum útköllum í nótt og í gærkvöldi, þar sem meðal annars komu upp fíkniefnamál, þjófnaðir og ýmis umferðarlagabrot.
Ökumaður var stöðvaður í akstri, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bifreið hans fundust einnig fíkniefni og er hann jafnframt grunaður um sölu og dreifingu þeirra. Aðilinn var vistaður í fangageymslu vegna málsins. Í öðru sambærilegu máli var ökumaður stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, en hann var látinn laus að lokinni sýnatöku.
Nokkrir ökumenn voru einnig stöðvaðir vegna minniháttar umferðarlagabrota, svo sem notkunar farsíma við akstur og aksturs án gildra ökuréttinda.
Lögregla var kölluð til vegna þjófnaðar í verslun í nokkrum tilvikum. Í þremur þeirra var málið leyst á vettvangi. Þá bárust tilkynningar um innbrot í iðnaðarhúsnæði þar sem þrír einstaklingar voru handteknir á staðnum. Málið er nú til rannsóknar.
Einnig var tilkynnt um aðila sem stal dekkjum. Sá fannst skömmu síðar og var handtekinn vegna málsins.
Lögregla var kölluð til þegar kviknaði í ökutæki, en ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um orsök brunans að svo stöddu.
Að auki óskaði leigubílstjóri eftir aðstoð lögreglu vegna farþega sem var í mikilli ölvun.

Komment