Lögregla sinnti fjölbreyttum verkefnum á tímabilinu frá klukkan 05:00 til 17:00 í dag, en alls voru um 60 mál skráð í kerfum embættisins. Málin sem hér eru rakin eru ekki tæmandi.
Meðal verkefna var ökumaður stöðvaður í Laugardalnum þar sem í ljós kom að ökuréttindi hans voru útrunnin. Málið var afgreitt með sekt. Í hverfi 105 var maður handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot, en hann var síðar látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Í Kópavogi var ökumaður handtekinn eftir eftirför lögreglu. Hann reyndist vera undir áhrifum áfengis og var vistaður í fangageymslu. Þá voru fleiri ökumenn stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum, meðal annars í Breiðholti og Kópavogi, þar sem þeir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.
Einnig komu upp mál tengd umferðarlagabrotum. Ökumaður í Breiðholti var sektaður fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur. Í Kópavogi var ökumaður stöðvaður fyrir að aka án þess að kveikja ljós bifreiðar sinnar. Þá voru einnig skráð tilvik þar sem ökumenn voru án gildra ökuréttinda, bæði vegna útrunninna réttinda og þess að viðkomandi hafði aldrei öðlast slík réttindi.


Komment