Einstakt og afar glæsilegt einbýlishús við Flókagötu 17 hefur verið sett á sölu á 275 milljónir króna.
Húsið, sem er 268,8 fermetrar að stærð, var byggt árið 1942 og býr yfir ríkri sögu og menningarlegu gildi.
Húsið var reist af listmálaranum Jóni Engilberts, sem byggði það fyrir sig og fjölskyldu sína. Arkitekt hússins var Gunnlaugur Halldórsson, einn af þekktari arkitektum landsins á sínum tíma. Jón bjó í húsinu um áratugaskeið ásamt eiginkonu sinni, Tove, og fjölskyldu þeirra.
Eignin gegndi tvíþættu hlutverki á sínum tíma, bæði sem heimili og vinnustofa listamannsins. Það endurspeglast í skipulagi hússins, þar sem rúmgóðar og fallegar stofur, fjöldi herbergja og sérstök vinnustofa með allt að 4–5 metra lofthæð skapa einstakt rými sem fá dæmi eru um.
Frá byggingu hússins hafa einungis tvær fjölskyldur búið þar.


Komment