
Hvorki sérstök athugun lögreglunnar á Austurlandi á hópi ferðamanna í fjórum húsbílum í fyrradag né samanburður við myndupptökur úr versluninni Freysnesi í Skaftafelli benda til þess að umræddir ferðalangar tengist umfangsmiklum þjófnaði sem þar á að hafa átt sér stað. Þetta kemur fram í frétt Austurfréttar.
Fréttir af meintum þjófnaði í versluninni komu fram í fjölmiðlum fyrir þremur dögum. Þar var greint frá því að hópur erlendra ferðamanna á fjórum breyttum sendibílum, svokölluðum camper-bílum, hefði farið á brott með talsvert magn af varningi.
Þegar fjórir slíkir bílar sáust á Austurlandi um miðjan dag í gær breiddust vangaveltur hratt út, bæði í samfélaginu og á samfélagsmiðlum. Margir töldu að þar væri um sama hóp að ræða og myndir og bílnúmer voru meðal annars deild opinberlega. Hópurinn hefur síðan verið á ferð um svæðið og var meðal annars í Fljótsdal um miðjan dag í gær.
Lögreglan á Austurlandi, sem var upplýst um leit lögreglu á Suðurlandi að meintum gerendum, stöðvaði bílalestina í gær þegar hún var á leið til Egilsstaða. Athugun á vettvangi leiddi ekkert grunsamlegt í ljós.
Þá hefur yfirferð á myndupptökum úr versluninni ekki bent til þess að ferðalangarnir á Austurlandi tengist málinu. Samkvæmt heimildum Austurfréttar er líklegra að þeir sem grunaðir eru um þjófnaðinn séu annars staðar en á Austurlandi.

Komment