
Skelfing greip um sig í Puerto de la Cruz í gærkvöldi eftir að rúta með breskum ferðamönnum festist í flóðum sem stormurinn Therese olli.
Mikil úrkoma, sem hefur leikið norðurhluta eyjarinnar grátt og sett svæðið á hæsta viðbúnaðarstig vegna „óvenjulegrar hættu“, olli skyndilegum flóðum. Rútan festist á svæði sem kallað er El Pulpo og varð að hluta á kafi í vatni.
Myndbönd sem dreifst hafa á samfélagsmiðlum sýna farþega reyna að komast út um þak rútunnar þar sem vatn hafði lokað hurðunum. Heyra mátti í fólki kalla á hjálp á meðan vatnið hækkaði hratt og götur breyttust í straumharðar ár.
Slökkviliðsmenn náðu þó fljótlega að bjarga öllum úr rútunni með stigum og komu þeim í öruggt skjól. Engin meiðsl hafa verið tilkynnt.
Atvikið átti sér stað á sama tíma og neyðarviðvörunarkerfið ES-Alert var virkjað og sendi hávær skilaboð í farsíma fólks á norðurhluta eyjarinnar til að vara við yfirvofandi flóðahættu.
Vitni segja að úrkoman hafi verið svo mikil að vatn flæddi skyndilega um götur bæjarins og kom fólki í opna skjöldu.
Yfirvöld hafa ítrekað hvatt íbúa og ferðamenn til að halda sig innandyra og forðast allar ferðir nema brýna nauðsyn beri til. Spáð er allt að 60 millimetrum af regni á einni klukkustund og er ástandið sagt mjög hættulegt.
Fólk er sérstaklega varað við að fara út á flóðasvæði, nálgast árfarvegi eða reyna að fara yfir vatn, hvort sem er gangandi eða akandi, á meðan stormurinn heldur áfram að ganga yfir eyjuna.

Komment